Evrópskir barnabílstólar öruggari Hödd Vilhjálmsdóttir skrifar 23. júlí 2013 19:17 Herdís Stoorgard, verkefnastjóri barnaslysavarna, mælir ekki með því að fólk kaupi bílstóla frá Bandaríkjunum.
Sífellt algengara verður að neytendur panti barnavörur á netinu og láti senda þær hingað til lands, en þetta kom fram í fréttum Stöðvar 2 í gærkvöldi. Herdís Stoorgard, verkefnastjóri barnaslysavarna, mælir ekki með því að fólk kaupi bílstóla frá Bandaríkjunum, en þeir stólar urðu ólöglegir hér á landi fyrsta júlí síðastinn þar sem að þeir uppfylla ekki evrópskar kröfur. Hún segir meðal annars bandaríska stóla ekki jafn örugga, þeir eru meðal annars prófaðir á hægari hraða auk þess sem að í Bandaríkjunum er svokölluð sjálfsábyrgðarprófun við lýði, en í henni felst að fyrirtækið prófar vöru sína sjálft og ábyrgist að hún uppfylli alla staðla. „Evrópa er líka með þessar kröfur en jafnframt því þá óska þeir eftir því að óháður aðili, sem er viðurkenndur, prófi vöruna aftur og þetta gerir það að verkum að það er mun minna um innkallanir á evrópska efnahagssvæðinu en í Ameríku,“ segir Herdís Ástæður þess að fólk pantar vörurnar erlendis frá er meðal annars verðmunur en barnavörur eru mun dýrari hér á landi en í Bandaríkjunum og mörgum öðrum löndum í Evrópu. En hvað finnst Herdísi um verð á barnavörum hér á landi, eins og á til dæmis á bílstólum? „Ég heyri mjög mikið frá þeim foreldrum sem hingað koma í fræðslu að þeim finnst þessi búnaður alveg ótrúlega dýr og maður getur spurt sig af hverju hann er svona dýr, þegar maður sér sambærilega vöru eða sömu vöruna til sölu á netinu í Evrópu,“ segir Herdís.
Mest lesið Inga endurvekur 25 metra regluna Innlent Heimurinn undrist villimennsku Íslendinga Innlent „Ég vil fá að ráða hvar ég slátra og hverja ég er í viðskiptum við“ Innlent Musk hraunar yfir „stórt og fallegt“ frumvarp Trumps Erlent Ákærðir fyrir manndráp, frelsissviptingu og rán Innlent „Þetta eru alveg galin vinnubrögð“ Innlent Sex ára fangelsi fyrir árás á fyrrverandi sambýliskonu Innlent Hrottalegu ofbeldi lýst í ákæru á hendur Stefáni, Lúkasi og Matthíasi Innlent Ákærðar tveimur árum eftir tunnumótmælin Innlent Segir viðbrögð borgarfulltrúa á mótmælum kjánaleg Innlent Fleiri fréttir Hrottalegu ofbeldi lýst í ákæru á hendur Stefáni, Lúkasi og Matthíasi Tvöfalt fleiri Parkinson-sjúklingar eftir fimmtán ár Alvarlegum ofbeldisbrotum fjölgað á síðustu kvartöld „Þetta eru alveg galin vinnubrögð“ Sex ára fangelsi fyrir árás á fyrrverandi sambýliskonu Mygla í Árnasafni: „Handritin eru örugg“ Inga endurvekur 25 metra regluna Bílastæðið rifið upp með rótum Hlýjasti maímánuður á landinu frá upphafi mælinga „Ég vil fá að ráða hvar ég slátra og hverja ég er í viðskiptum við“ Krefur Ríkisútvarpið um leiðréttingu Ekki ólíklegt að þingið fari nokkra daga fram yfir „Hef mikinn skilning á því að Víðir hafi gert þetta“ Horft til tillagna um að minni fyrirtæki verði undanskyld jafnlaunavottun Heimurinn undrist villimennsku Íslendinga Landskjörstjórn vill breyta stjórnarskránni og Víðir gefur lítið fyrir gagnrýni Ákærðir fyrir manndráp, frelsissviptingu og rán „Það er rétt skilið“ Sjö tilkynningar um heimilisofbeldi á dag að meðaltali Ákærðar tveimur árum eftir tunnumótmælin Vill rannsaka störf sérstaks saksóknara eftir hrun Landskjörstjórn segir nauðsynlegt að breyta stjórnarskrá Elsta svæði Vopnafjarðar staðfest sem verndarsvæði Viðvaranir enn í gildi fyrir norðan Áhyggjuefni ef raddir kvenna hætti að heyrast í þróunaraðstoð Segir viðbrögð borgarfulltrúa á mótmælum kjánaleg Alda María nýr formaður Heimdallar Um 160 fatlaðir starfsmenn hjá Ás styrktarfélagi í Kópavogi Bílastæðin höluðu inn 78 milljónum en kostuðu litlu minna Forsætisráðherra skynjar óöryggi meðal fólks Sjá meira