Viðskipti innlent

Hagsjá: Ekki tekið á alvarlegri skuldastöðu ríkisins

„Staða ríkisfjármála skiptir verulegu máli fyrir þróun íslensk efnahagslífs. Skuldastaða ríkisins er alvarleg og fáar tillögur virðast uppi til lausnar á þeirri stöðu. Mikils aðhalds hefur verið gætt í rekstri ríkisins á síðustu árum, en staðan er enn sú að um 15% tekna fara í vaxtagreiðslur. Skuldir og skuldbindingar ríkisins eru nú vel fyrir ofan eina landsframleiðslu og fara hækkandi. Því er mikilvægt að miklu aðhaldi verði beitt áfram og unnið markvisst að lækkun skulda.“

Þetta segir í Hagsjá hagfræðideildar Landsbankans þar sem fjallað er um stöðu ríkisfjármála. Þar segir einnig að fjármögnun innlendra aðila á erlendum lánamörkuðum hefur ekki verið mikil á undanförnum árum, en sú viðleitni sem sést hefur í þeim efnum hefur gengið þokkalega. Þannig hafa bæði ávöxtunarkrafa og álag fyrir Ísland farið lækkandi. Ætla má að mikill agi í fjármálum ríkisins á síðustu árum hafi aukið tiltrú á íslensku efnahagslífi.

„Öll merki um tilslökun í fjármálum ríkisins gætu því stuðlað að lakari kjörum okkar á erlendum lánsfjármörkuðum, en kjör ríkisins á erlendum mörkuðum setja grunnkjör fyrir erlendar lántökur annarra innlendra aðila,“ segir í Hagsjánni.

Fjárlög halda ekki

Þá segir að það sé viðtekin venja hér á landi að fjárlög halda ekki. Útgjaldaaukning frá fjárlagafrumvarpi til fjárlaga og svo til fjáraukalaga og endanlegs ríkisreiknings er oft verleg og niðurstaða versnar oftar en ekki. Síðasti birti ríkisreikningur var fyrir árið 2011, en þá versnaði rekstrarhalli ríkisins um 43 milljarða kr. frá fjáraukalögum. Á næstu vikum er von á ríkisreikningi fyrir árið 2012 sem mun sýna hvort árangur var ásættanlegur á árinu 2012.

Bilið frá fjáraukalögum til ríkisreiknings er oft skýrt með óreglulegum liðum og einskiptisaðgerðum. Þau útgjöld eru hins vegar ekki frábrugðin öðrum útgjöldum og bætast yfirleitt beint við skuldir ríkisins. Endanleg niðurstaða í rekstri ríkisins í ríkisreikningi 2011 var mun neikvæðari en niðurstaða eftir fjáraukalög, sagan gæti því bent til verri niðurstöðu fyrir 2012. Sjá nánar hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×