Íslensk fegurð landar titlum í útlöndum Ellý Ármanns skrifar 12. júní 2013 14:45
Fanney Ingvarsdóttir sem sigraði Ungfrú Ísland keppnina eftirminnilega árið 2010 tók þátt í keppninni Miss Queen of Scandinavia eða Ungfrú Skandinavía á dögunum. Við heyrðum í Fanney og báðum hana að rifja upp ævintýrið í máli og myndum eða öllu heldur símamyndum sem hún tók um borð í skemmtiferðaskipi þar sem keppnin fór fram. Fanney (ungfrú Ísland 2010), Sigrún (ungfrú Ísland 2011) og Sigríður Dagbjört Ásgeirsdóttir (ungfrú Reykjavík 2011). Hvernig kom það til að þú fórst út í þessa fegurðarsamkeppni? „Umboðið sem sá um þessa ferð hafði samband við Silju Allansdóttur sem stýrir keppninni Ungfrú Vesturland sem hafði síðan samband við okkur. Það voru nokkrir titlar í boði en keppnin fór fram á skemmtiferðaskipinu Silja Symphony sem siglir á milli Stokkhólms og Helsinki svo við fengum frábært ferðalag og upplifun í leiðinni út úr þessu," svarar Fanney. Þetta hefur verið skemmtiferðaskip í lagi. Nutu sín í botn Hverjar fóru með þér út í keppnina? „Sigrún Eva Ármannsdóttir og Sigríður Dagbjört Ásgeirsdóttir fóru með mér fyrir Íslands hönd. Við nutum okkar ótrúlega vel. Við þrjár ásamt stelpum frá Svíþjóð, Finnlandi, Noregi og Danmörku vorum að keppa um titlana. Við vorum allt í allt um 30 stelpur sem við náðum að kynnast ágætlega á þessum stutta tíma. Þetta var rosalega gaman, mikið og margt sem gerðist svo lítið var um svefn og rólegheit." Glæsileikinn allsráðandi. Þessir galakjólar eru dásamlegir. Spennandi keppni Hvernig fóru svo leikar? „Við tókum þátt á laugardeginum þar sem ég var krýnd Miss Supranational Iceland 2013, þar af leiðandi fer ég út og keppi um titilinn Miss Supranational í Hvíta Rússlandi í september. Mjög spennandi og rosalega flott keppni sem er borin mikil virðing fyrir," segir Fanney. Fegurstu konur Íslands á röltinu. Pökkuðu keppninni saman „Sigrún var krýnd Miss Bride of the World Iceland og Sigríður Miss Tourism International. Við erum sem sagt allar á leiðinni út í heim að taka þátt fyrir Íslands hönd og öðlast ný tækifæri og fá að ferðast. Það er alltaf stór partur af þessu. Reynslan og upplifunin sem að maður fær aldrei til baka. Það er alltaf komið rosalega vel fram við mann í svona keppnum á erlendri grundu. Það er allt svo miklu stærra." Fanney var með nokkur dress með sér sem voru öll ýkt flott. Fegurðarbransinn allt annar í útlöndum „Þessi fegurðarbransi er svo allt annar en hérna heima. Maður verður helst að fara erlendis til að geta notið sín með titlana," segir hún og hlær. „Þetta er miklu stærra úti. Á sunnudeginum var svo Ungfrú Svíþjóð keppnin haldin, eins ótrúlega skrítið og það hljómar að þá áttum við líka að taka þátt í því. Við vorum að sjálfsögðu ekki að keppa um neina titla þar en við tókum þátt í sýningunni eins og stelpurnar sem voru að taka þátt. Þetta var rosalega gaman, stutt og laggott og okkur hlakkar rosalega til að fara út í haust. Nýta titilinn sem mest, fá að ferðast og öðlast ný tækifæri sem maður fengi annars ekki," segir Fanney. Þessi kjóll er rosalegur. Fanney er eins og prinsessa svei mér þá! Vá! Ómótstæðileg með hárið tekið frá í hvítum stuttum kjól.
Mest lesið Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Lífið Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Lífið Lét drauminn rætast á Ítalíu Lífið Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Lífið Leggur til að hætt verði lestri kveðja við útfarir Lífið Syrgja Arnar Atla sem lést 24 ára gamall Lífið „Kjóllinn markaði nýtt upphaf í mínu lífi“ Tíska og hönnun Nálgast hundrað þúsund fylgjendur á Instagram og rekur sveitahótel Lífið Hvað veistu um... Ross í Friends? Lífið Sex íslenskir söngvarar ráðnir til Þjóðaróperunnar Menning Fleiri fréttir Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Kominn á toppinn Leggur til að hætt verði lestri kveðja við útfarir Lét drauminn rætast á Ítalíu Syrgja Arnar Atla sem lést 24 ára gamall Nálgast hundrað þúsund fylgjendur á Instagram og rekur sveitahótel Sindri gerðist trukkabílstjóri Piparmeyjan Paul mæti á skjáinn í júlí Laufey óskar ástinni sinni til hamingju með daginn Kolfinna Nikulás og Sturla Atlas halda á ný mið Greta Salóme á von á sínu þriðja Bónorð yfir síðum bjór á Brooklyn-brúnni Ungir veiðimenn nutu sín í sólinni Hvað veistu um... Ross í Friends? GusGus drottning og frú selja í Hafnarfirði „Þetta átti allt að gerast og ég er þakklát í dag“ Athafnahjón selja sjarmerandi hús í Vesturbæ Ólík túlkun listamanna á Reykjavík í tvær aldir „Ég vil gera frábæra hluti eins og ég sé í sjónvarpinu“ Jóhann Örn fulltrúi Íslands í Mr. Bear Europe Þrastahreiður í Garðabæ í beinni Kjarnorkuverkfræði-draumurinn rætist í París Gugga gestur í afmælisboði Kanye West Söguleg skiltaskipti á Ölstofunni Urður trúlofuð og mætt aftur á Instagram „Grét meðan verið var að dæla í mig blóðinu” Fjárfestir og fyrirsæta selur útsýnisíbúð Útskiptin miklu og svikula elítan Sjá meira