Skora á Hermann að "drulla" sér vestur Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 13. júní 2013 12:00 Pétur Georg Markan mætti á Evrópumeistaramótið í Mýrarbolta í fyrra.
Forsvarsmenn Mýrarboltans, sem fram fer árlega á Ísafirði um Verslunarmannahelgina, hafa skorað á Hermann Hreiðarsson, þjálfara ÍBV, að gegna stöðu yfirmanns dómaramála fari svo að ÍBV tapi gegn BÍ/Bolungarvík í kvöld. Eyjamenn sækja Ísafjörð heim í kvöld þar sem liðið mætir sameinuðu liði Ísfirðinga og Bolvíkinga í átta liða úrslitum Borgunarbikars karla í knattspyrnu. Mýrarboltamenn hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem þeir skora ennfremur á Hermann að taka David James, markvörð ÍBV, með sér vestur um Verslunarmannahelgina. Um eina tækifæri James sé að ræða til að verða Evrópumeistari. „Nú vill svo til að í dag mætir fjöldi erlendra ferðamanna á svæðið, þeir koma þó ekki með skipi heldur flugvél og alla leið frá lítilli eyju sem kallast Vestmannaeyjar. Þeir komu þó ekki af fúsum og frjálsum vilja heldur vegna þvingana frá harðstjórunum í KSÍ. „Það vill verða erfitt að fá Eyjamenn til Vestfjarða nema þá til þess að sækja sér ísfirska maka og draga þá aftur út á eyjuna litlu," segir í yfirlýsingunni þar sem skorað er á Hermann. „Mýrarboltafélag Íslands býður Hermann Hreiðarsson og félaga í ÍBV velkommna vestur á Ísafjörð og vill nýta tækifærið og skora á Hermann. Áskorunin felst í því að ef ÍBV vinnur ekki BÍ/Bolungarvík í leiknum í kvöld að þá mæti Hermann vestur um Verslunarmannahelgina og verði yfirmaður dómaramála á EM í Mýrarbolta." Áskoruninni er einnig beint að David James. „Einnig skal hann draga með sér David James af góðmennskunni einni saman því á Ísafirði er eini sénsinn fyrir þennan fyrverandi landsliðsmarkmann að verða Evrópumeistari í einhverju."Áskorun Djúpmanna í heild sinni má sjá hér.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Solskjær ekki lengur líklegastur Enski boltinn Uppgjörið: Frakkland - Ísland 31-29 | Jákvæð teikn þrátt fyrir tap Handbolti Alfreð fagnaði aftur gegn Degi fyrir EM Handbolti Miðvarðaæði Liverpool Enski boltinn Magnaður McTominay til bjargar eftir að Conte brjálaðist Fótbolti Pavel hjálpar Grindvíkingum Körfubolti Kemi tilþrifin: „Ég skoraði aðeins meira og er myndarlegri“ Körfubolti Uppgjörið Stjarnan - Grindavík 100-77 | Aftur fór Stjarnan illa með Grindavík Körfubolti Sunnlendingar sóttu síðasta farseðilinn eftir mikla spennu Körfubolti Hákon lagði upp en Endrick sá til þess að Lille félli úr bikarnum Fótbolti Fleiri fréttir Róbert með þrennu í sigri KR Fram lagði Leiknismenn Landsliðsbræður Palestínu sameinast í Keflavík Bikarhetjan til KA Þrótti berst mikill liðsstyrkur úr Keflavík Jón Guðni aðstoðar Ólaf Inga Blikarnir eru búnir að missa 34 mörk og 25 stoðsendingar Birta eltir ástina og semur við Genoa Júlíus Mar seldur til Kristiansund Bæði Blikaliðin fá sánuklefa fyrir komandi tímabil Feginn að vera fluttur heim úr fátækrahverfinu í Kína Svekktur að fá ekki leyfi til að taka við ÍBV Alfreð hættur hjá Breiðabliki Skipulagsbreytingar á skrifstofu KSÍ Nýliðarnir fá bandarískan markvörð Júlíus sagður á förum frá KR til Noregs Vestri opnar knattspyrnuakademíu í Senegal Valur fær Dana til að fullmóta teymi sín Ingimar Stöle semur við Val Adda verður hægri hönd Ian Jeffs í sumar „Mér var bara tjáð að þeir ætluðu að leita eitthvað annað“ Enn kvarnast úr liði Blika Leið Víkings að titlinum rifjuð upp í kvöld Þjálfar 2. flokk samhliða því að spila fyrir KR Færeysk landsliðskona til liðs við ÍBV Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Heyrði hvorki frá Blikum né Víkingum Úr Bestu heim í Hauka „Þetta er stærsti klúbbur Íslands“ Sjá meira