Elfar Freyr gæti spilað með Blikum Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 6. júní 2013 12:45 Elfar Freyr varð Íslandsmeistari með Blikum sumarið 2010. Mynd/Valli
Miðvörðurinn Elfar Freyr Helgason æfir þessa dagana með Breiðabliki. Hann er samningsbundinn Randers í Danmörku til 1. júlí en gæti eftir það spilað með Blikum. „Þeir hafa spurt mig út í hvort ég sé tilbúinn að koma aftur. Ég íhuga það en gef mér góðan tíma," segir Elfar Freyr í viðtali á stuðningsmannasíðu Breiðabliks. Elfar Freyr segist óviss um framtíðina. Hann sé búinn að skrá sig í fjarnám í viðskiptafræði í Háskólanum í Reykjavík í haust en hann viti ekki hvar hann muni spila. Miðvörðurinn segist enn ekki hafa fengið greidd öll laun sín síðan hann var á mála hjá AEK í Grikklandi. „Það er í málaferlum hjá FIFA. Ég skipti mér lítið af því," segir Elfar Freyr. Í viðtalinu var rifjuð upp skemmtileg saga frá því hann lék með Blikum á sínum tíma. Þá mætti Elfar Freyr með jólaseríu í bónuspoka á æfingu. „Ég var vanur að mæta með Bónus- eða Hagkaupspoka á æfingar. Svo tók ég einu sinni vitlausan poka. Tók jólaseríurnar hans pabba með. Þær voru vel vafðar saman en ekki úti um allt í pokanum. Það var nú meiri vitleysan," segir Elfar Freyr léttur. Hann segist hafa fengið sekt frá þáverandi samherja sínum, Kára Ársælssyni, enda þurfti Elfar að bruna heim og ná í skóna sína. Fyrir vikið varð hann seinn á æfingu sem var brot á reglum sektarsjóðs Blika.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Ögrandi herferð Sweeney gagnrýnd: „Get ekki lýst því hvað ég er reið“ Sport Missti eins árs gamlan son sinn Handbolti Hafþór lét Haaland líta út eins og smástrák Enski boltinn Uppgjörið: Víkingur - Keflavík 4-1 | Annað skref í átt að titlinum Íslenski boltinn Fámáll um orðrómana Íslenski boltinn „Sýnir hvað þau eru þakklát fyrir það sem ég gaf klúbbnum“ Fótbolti Elín Klara slær í gegn og uppfyllir brátt draum sinn Handbolti Sjáðu ólöglega sigurmarkið og rauðu spjöldin Enski boltinn Leedsarar léku sér að Newcastle Enski boltinn „Þetta er bara svo ógeðslega dýrt“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Get ekki beðið eftir leiknum í Frostaskjóli“ Uppgjörið: Víkingur - Keflavík 4-1 | Annað skref í átt að titlinum Sjáðu sturlað mark Tómasar, rassamark Vals og tvennur Galdurs og Benedikts Slagsmál á æfingu trufluðu ekki: „Litlar stimpingar með stórum afleiðingum“ Fámáll um orðrómana „Þetta er bara svo ógeðslega dýrt“ „Allir orðnir vinir í skóginum“ „Draumur að fá að spila á landsliðsvellinum“ Uppgjörið: Fylkir - HK 2-2 | Þrjú rauð spjöld og Fylkir í úrslit Þróttur tryggði sig í úrslitaleikinn „Mótið í rauninni búið“ „Við komum svo voða skrítnir inn í seinni hálfleikinn“ „Hræddur um að Höddi Magg hafi fengið hland fyrir hjartað“ „Fannst dómarinn missa svolítið tökin á leiknum” Uppgjörið: Stjarnan - ÍBV 2-0 | Warén jók á áhyggjur Eyjamanna Uppgjörið: KR - ÍA 5-1 | Markahæstir í sögunni Markaskorari Vals óviss um framtíð sína Uppgjörið: Valur - Þór Ak. 4-1 | Valsmenn ekki í vandræðum með Þórsara Uppgjörið: FH - KA 3-0 | FH-ingar fjórum stigum frá fallsvæðinu Þróttarar brutu bikarinn Kemur fyrirliða KR til varnar: „Talar beint frá hjartanu“ „Hver einasti maður ákveðið að við færum beint niður“ Stöðvaði leikinn og skutlaði sér á eftir gæs Grindavík/Njarðvík - Þróttur R. 1-2 | Þróttur bikarmeistari í fyrsta sinn Valshjartað slær enn hjá hetju KR KR upp í Bestu deildina MSK Zilina að kaupa Dag Orra frá Val Þetta verður spennuleikur í Laugardalnum KR með örlögin í sínum höndum og sæti í Bestu deildinni í boði Töpin sitja ekki í leikmönnunum fyrir úrslitaleikinn Sjá meira