Íslenski boltinn

Stjarnan skorað í 22 heimaleikjum í röð

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Mynd/Daníel
Stuðningsmenn Stjörnunnar er áskrifendur að mörkum hjá karlaliði sínu á Samsung-vellinum í Garðabæ. Stjarnan hefur skorað í 22 heimaleikjum í röð.

Jóhann Laxdal skoraði tvö mörk í 3-2 sigri á Víkingi frá Ólafsvík í 2. umferð á sunnudaginn. Óskar Ófeigur Jónsson hefur tekið saman tölfræði yfir markaveisluna í Garðabænum sem hefur verið óslitin frá maí 2011. Hér að neðan má sjá fjölda marka sem Stjarnan hefur skorað í heimaleikjunum.

1 mark -  6 sinnum

2 mörk -  5 sinnum

3 mörk -  5 sinnum

4 mörk -  4 sinnum

5 mörk eða meira - 2 sinnum

Síðasta liðið til að halda hreinu í Garðbæ var lið Víkinga í 2. umferð 2011.


Tengdar fréttir

Slor og skítur í Eyjum | Myndband

ÍBV er með fullt hús að loknum fyrstu tveimur umferðunum í Pepsi-deild karla og óhætt að fullyrða að stemningin í Eyjum sé góð.

Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: Stjarnan - Víkingur 3-2

Stjarnan vann fínan sigur, 3-2, á nýliðum Víkings frá Ólafsvík. Jóhann Laxdal átti frábæran leik fyrir Stjörnuna og gerði tvö mörk. Víkingar hafa því tapað fyrstu tveim leikjum tímabilsins en Stjörnumenn unnu í kvöld sinn fyrsta sigur á mótinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×