Erlent

ESB bannar fjölnota olíukrúsir á veitingahúsum

Jóhannes Stefánsson skrifar
Ílát af þessu tagi munu heyra sögunni til á veitingastöðum í Evrópu
Ílát af þessu tagi munu heyra sögunni til á veitingastöðum í Evrópu Mynd/ AP

Skálar og krúsir með alls kyns sósum og olíum, einkum og sér í lagi ólífuolíu heyra brátt sögunni til á veitingastöðum innan landa Evrópusambandsins.

Þann 1. janúar 2014 taka gildi lög sem kveða á um að ólífuolía „sem stillt er upp á borði veitingastaðs" verði að vera í forpökkuðum verksmiðjuframleiddum umbúðum með sérstökum stút og merkingum í samræmi við reglugerðir sambandsins.

Þar með mun veitingahúsum vera óheimilt að bera fram olíur og dressingar í fjölnota glerílátum en slíkt mun hafa það í för með sér að veitingahús geta ekki keypt birgðir af litlum framleiðendum sem ekki geta uppfyllt fyrrnefndar kröfur.

Sam Clark, sem er matargagnrýnandi og kokkur á hinum fræga Moro veitingastað í London sagði við fréttamiðilinn Daily Telegraph að nú þyrfti hann að hætta að bera fram sérvalda spænska ólífuolíu með brauðinu á veitingastaðnum.

„Þetta mun hafa áhrif á okkur. Þetta snýst um val og frelsi til að velja. Við kaupum olíuna okkar frá spænskum bónda til að þjónusta gesti okkar," sagði Sam. „Meiri pakkningar eru ekki umhverfisvænar og munu takmarka val okkar á olíu við þá sem er fjöldaframleidd." Clark Heldur því fram að löggjöfin muni gera út af við lítil fyrirtæki og frumkvöðla í greininni en gagnast stórum framleiðendum sem eiga undir högg að sækja á Spáni, Ítalíu, Grikklandi og Portúgal.

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur fært þau rök fyrir setningu laganna að þau muni auka hreinlæti og bæta ímynd ólífuolíunnar. „Þetta er gert til að tryggja gæði og uppruna ólífuolíunnar. Markmiðið er að upplýsa og vernda neytendur. Við eigum líka von á því að þetta muni auka á hreinlæti," sagði embættismaður á vegum framkvæmdastjórnarinnar.

Clark gefur lítið fyrir þessa röksemdafærslu og segir hana yfirlætisfulla og gera lítið úr neytendum. „Viðskiptavinirnir eru ekki heimskir, þeir væru þeir fyrstu til að uppgötva það ef eitthvað væri óeðlilegt við vöruna." Viðbrögð Martin Callanan, þingmanns á Evrópuþinginu voru á svipaða lund: „Er kominn 1. apríl?"

Ítarlega er fjallað um málið á vef The Telegraph.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×