Íslenski boltinn

Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: Keflavík - Fylkir 2-2

Árni Jóhannsson skrifar
Jóhann Birnir klúðraði vítaspyrnu í leiknum.
Jóhann Birnir klúðraði vítaspyrnu í leiknum.

Keflavík og Fylkir þurftu að skipta með sér stigunum í leik liðanna suður með sjó í 4. umferð Pepsi-deild karla í kvöld. Keflavík spilaði allan síðari hálfleikinn manni færri en bæði lið klúðruðu vítaspyrnu í leiknum.

Fylkismenn máttu þakka fyrir að hafa fengið eitt stig úr leik þeirra við Keflvíkinga í Keflavík í kvöld. Heimamenn byrjuðu leikinn af miklum krafti og náður fljótt öllum völdum á vellinum. Keflvíkingar uppskáru mark eftir 13 mínútna leik þegar Magnús Þórir Matthíasson, sem hélt áfram þaðan sem frá var horfið úr seinustu umferð, geystist upp að endamörkum Fylkis og renndi boltanum út í vítateiginn. Þar kom Arnór Ingvi Traustason aðvífandi, vann klafs við varnarmann Fylkis og lagði boltann snyrtilega í fjærhornið með utanverðu hægri fótnum.

Eftir markið héldu heimamenn áfram að stjórna leiknum án þess að bæta við marki en héldu Fylkismönnum vel í skefjum sem fengu fá færi í fyrri hálfleik. Á 42. mínútu komst Fylkir í skyndisókn þegar Viðar Örn Kjartansson, besti maður Fylkis í kvöld, sendi laglega sendingu inn fyrir vörn Keflvíkinga á Tryggva Guðmundsson sem mundaði skotfótinn. Áður en Tryggvi náði skoti renndi Andri Fannar Freysson sér fyrir boltann og virtist ná boltanum áður en hann snerti Tryggva, Vilhjálmur Alvar Þórarinsson dómari leiksins, mat það hins vegar svo að Andri Fannar hafi snert leikmannin meira heldur en boltann og dæmdi því víti á heimamenn. Þar sem Andri Fannar var aftasti varnarmaður Keflvíkinga þurfti Vilhjálmur að vísa Andra Fannari af velli og Keflvíkingar því einum færri það sem eftir lifði leiks. Viðar Örn Kjartansson stillti boltanum upp á vítapunktinum og spyrnti að marki. Vítaspyrnan var góð, þéttingsföst neðarlega í hægra hornið en markvörður Keflvíkinga David Preece giskaði á rétt horn og varði spyrnuna glæsilega.

Eftir vítaspyrnuna var hitinn orðinn ansi mikill í mönnum og lentu Jóhann Birnir Guðmundsson og Árni Freyr Guðnason í einhverju orðaskaki á miðjum vellinum sem endaði með því að Jóhann hrinti Árna í jörðina. Báðir leikmenn uppskáru gult spjald fyrir þessi fíflalæti en Jóhann var heppinn að fjúka ekki út af. Hálfleiknum lauk síðan án þess að meira markvert gerðist og voru heimamenn með sanngjarna 1-0 forystu.

Í upphafi síðari hálfleiks virtist það ekki hafa mikil áhrif að Keflvíkingar væru leikmanni færri, þeir komust tvisvar upp að endamörkum en fyrirgjafir þeirra enduðu annaðhvort á varnarmanni Fylkis eða í höndum Bjarna Þórðar markvarðar Fylkis.

Á 52. mínútu fengu Keflvíkingar síðan víti þegar Jóhann Birnir Guðmundsson tók hornspyrnu fyrir heimamenn og sendi boltann inn í teig, Árni Freyr Guðnason slæmdi hendinni í boltann og var réttilega dæmd vítaspyrna. Jóhann Birnir framkvæmdi vítaspyrnuna en markvörður Fylkis vildi ekki vera minni maður en kollegi sinn í marki Keflavíkur og varði lausa spyrnu Jóhanns. Eftir vítaspyrnuna hresstust gestirnir úr Árbænum og uppskáru mark á 58. mínútu leiksins. Fylkir spilaði þá knettinum vel á milli manna fyrir utan vítateig Keflavíkur þar sem boltinn endaði fyrir fótum Viðars Örn Kjartanssonar sem prjónaði sig í gegn um vörnina og skaut að marki. David Preece varði skotið en Tryggvi Guðmundsson var vel vakandi á fjærstöngini og potaði boltanum í autt markið og jafnaði fyrir gestina.

Markið hafði góð áhrif á gestina og sóttu þeir meira næstu mínútur. Ekki tókst þeim að koma boltanum í markið þrátt fyrir margar álitlegar sóknir. Keflvíkingar höfðu dottið neðar á völlinn og fækkað sóknarmönnum sínum og því ekki skrýtið að Fylkir næði fleiri sóknum á mark Keflvíkinga.

Þriðja mark leiksins kom hins vegar frá Keflvíkingum á 78. mínútu leiksins. Fylkismenn lentu í basli með háa sendingu sem heimamenn sendu inn á teiginn. Boltinn barst á besta mann vallarins, Arnór Ingva Traustason sem átti gott skot sem hafnaði stönginni. Hörður Sveinsson, sem hafði verið inn á vellinum í rétt rúmar þrjár mínútur, sýndi framherja eðli sitt með því að vera á réttum stað, fylgja stangarskotinu eftir og setja boltann í netið við mikinn fögnuð áhorfenda á Nettó-vellinum.

Keflvíkingar héldu forystunni þó ekki lengi því fimm mínútum seinna komst Elías Rafn Björnsson upp að endamörkum og sendi boltann fyrir. Keflvíkingum tókst ekki að hreinsa boltann úr teig sínum og náði varnarmaðurinn Ásgeir Eyþórsson boltanum í miðjum vítateig Keflvíkinga og lagði boltann fyrir sig áður en hann sendi knöttinn snyrtilega framhjá markverði Keflvíkinga og í markið. Þar með var staðan orðin jöfn og þrátt fyrir að Fylkir hafi átt fleiri marktilraunir á lokamínútum, máttu liðin sætta sig við jafnan hlut úr leiknum.

Keflvíkingar mega vera sárir að hafa ekki fengið öll stigin úr leiknum og heldur basl þeirra á heimavelli áfram. Þeir voru sterkari aðilinn allan fyrri hálfleikinn og fyrstu mínúturnar í síðari hálfleik og hefðu getað verið búnir að gera út um leikinn. Fylkismenn nýttu sér hinsvegar að hafa verið manni fleiri í síðari hálfleik og færðu sér í nyt liðsmunin seinni part hálfleiksin og eru væntanlega sáttir með stigið miðað við frammistöðu sína í leiknum.

Haraldur Freyr: Rauða spjaldið breytti leiknum

Haraldi Frey Guðmundssyni, fyrirliða Keflavíkur, fannst leikur sinna manna fínn og að liðið hafi sýnt mikla baráttu á móti Fylki á Nettó-vellinum í kvöld.

„Úrslitin eru ekki góð,“ sagði Haraldur eftir leik. „Leikurinn sem slíkur var fínn hjá okkur. við leggjum líf og sál í leikinn, það var fín barátta og kraftur í liðinu en því miður þá fáum við bara eitt stig úr leiknum. Við viljum alltaf fá þrjú stig á heimavelli og það er því bara næsti leikur sem telur."

Haraldi fannst hinsvegar Keflvíkingar ekki gera nógu vel í að landa stigunum þegar þeir komust yfir í síðari hálfleik en hrósaði markverði Keflvíkinga fyrir góða frammistöðu.

„Fyrstu 30 mínúturnar, jafnvel allan fyrri hálfleikinn, stjórnum við leiknum og eigum að vera komnir í tvö jafnvel þrjú núll. Svo fá þeir þetta víti og við missum mann út af og það breytir leiknum að missa mann út af. Dave heldur okkur inn í leiknum með því að verja vítið. Við förum svo inn í hálfleik með eins marks forystu og finnst við hafa þokkalega stjórn á leiknum í síðari hálfleik. Þeir ná hinsvegar að jafna en við komumst aftur yfir og þá finnst mér við eiga að gera betur og sigla leiknum heim þar sem það voru ekki nema 10 mínútur eftir þegar þeir jafna leikinn.“

Þegar Haraldur var spurður út í vítið sem Keflvíkingar klúðruðu fannst honum að hefðu heimamenn nýtt það hefði verið meiri möguleiki á sigri.

„Mörk breyta alltaf leikjum og hefðum við komist í 2-0 þá held ég að við hefðum við farið langt með að sigla sigrinum heim. Þannig að klárlega breytti það miklu að ná ekki að nýta vítið.“

Ásmundur Arnarsson: Fyrst og fremst svekktur með frammistöðu minna manna

Þjálfari Fylkis sagðist vera óánægður með andleysi sinna manna í fyrri hálfleiknum á Nettó-vellinum í kvöld en hrósaði sínum mönnum fyrir að hafa ekki látið klúðraða vítaspyrnu draga meira úr þeim.

„Fyrst og fremst svekktur með frammistöðu minna manna, sérstaklega í fyrri hálfleik. Við mættum varla til leiks í fyrri hálfleik og var ég mjög óánægður með það eins og viljann og baráttuna í liðinu, það vantaði algjörlega í okkar leik í fyrri hálfleik. Í þeirri stöðu vorum við heppnir að vera ekki fleiri mörkum undir en fengum svo tækifæri að koma til baka í seinni hálfleik verandi manni fleiri allan hálfleikinn. Seinni hálfleikurinn var vissulega skárri af okkar hálfu en ég hefði viljað sjá enn þá meira líf í okkur að ná í öll stigin hér í kvöld. Mér fannst við hinsvegar vinna okkur vel út úr því að klúðra vítaspyrn og fá strákarnir hrós fyrir það.“

Hálfleiksræða Ásmundar var einföld að þessu sinni að sögn þjálfarans.

„Við fórum bara yfir staðsetningar og hvernig hægt væri að spila boltanum undan vindi og manni fleiri. Láta boltann rúlla og bíða eftir réttu tækifærunum og fá smá líf í liðið sem vantaði algjörlega í fyrri hálfleik. Það skilaði sér ágætlega en ekki alveg nógu vel.“

Hann vildi samt ekki meina að það hafi verið algjör heppni að ná einu stigi úr leiknum í kvöld.

„Við getum lagt það upp þannig að þetta hafa verið heppni, þeir fengu alveg möguleika en við líka,“ sagði Ásmundur og bætti við Fylkismenn væru orðnir langeygir eftir fyrsta sigrinum þegar hann var spurður um áhrif úrslitanna.

„Við fáum bara eitt stig hér í dag, það telur hægt að tína inn eitt og eitt stig. Við viljum auðvitað fara að vinna leik.“

Zoran Ljubicic: Klaufalegt mark kostaði okkur sigurinn

Þjálfara Keflvíkinga fannst lið sitt ekki hafa fengið út úr leiknum það sem þeir áttu skilið.

„Mér fannst við betri aðilinn í dag og fannst við verðskulda að vinna þennan leik. Mér fannst við spila sérstaklega vel í fyrri hálfleik og stjórnuðum leiknum frá A til Ö. Skoruðum mark, fengum fullt af fínum færum og möguleika á að gera betur en klikkum alltaf á síðustu sendingu,“ sagði Zoran Daníel Ljubicic þjálfari Keflavíkur.

Zoran fannst rauða spjaldið sem Andri Fannar Freysson fékk í lok fyrri hálfleiks gera heimamönnum erfiðara fyrir í seinni hálfleik þó Keflvíkingar hafi ekki verið lakari aðilinn manni færri.

„Við vorum svo mjög óheppnir að Andri Fannar hafi verið rekinn útaf og gerði það okkur erftitt fyrir í seinni hálfleik. Við duttum aftar á völlinn en reyndum að halda skipulagi og beita skyndisóknum sem gekk mjög vel og mér fannst við ekki lakara lið í seinni hálfleik manni færri. Við reyndum allt sem við gátum, náum að skora annað mark og klúðrum víti. Því miður fáum við á okkur klaufalegt mark í lokin þar sem einbeitingarleysi gerði vart við sig. Ég verð að hrósa mínum leikmönnum fyrir dugnað og vilja, þeir lögðu sig alla fram en svona er fótboltinn.“

Zoran var sammála fyrirliða sínum að það hefði breytt miklu ef Keflvíkingar hefðu nýtt vítið sem þeir fengu í síðari hálfleik.

„Það hefur alltaf einhver áhrif í stöðunni 1-0. Ef við skorum annað mark hefðu þeir þurft að koma ofar á völlinn og það hefði skapað meira pláss fyrir okkur á bakvið vörn þeirra. Það hefði orðið allt annar leikur.“

Zoran var svekktur með rýra uppskeru í dag en hefur verið ánægður með spilamennsku sinna manna það sem af er sumri.

„Við erum svekktir með að hafa bara fengið eitt stig út úr leiknum en við verðum að halda áfram. Vonandi getum við pikkað upp stigin annars staðar seinna í sumar. Ég er hinsvegar mjög ánægður með spilamennskuna hingað til, það er vilji og barátta í liðinu en því miður náðum við ekki að klára þennan leik í dag og við verðum að snúa okkur að næsta verkefni."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×