Íslenski boltinn

Spáin: Stjarnan hafnar í 3. sæti

Mynd/Ernir
Íþróttadeild Vísis og Fréttablaðsins spáir í spilin fyrir Pepsi-deild karla sem hefst þann 5. maí næstkomandi. Við spáum því að Stjarnan hafni í 3. sæti.

Nú gæti verið komið að því. Eftir 53 ára titlalausa vertíð Stjörnumanna hefur liðið aldrei verið jafnsterkt. Alexander Scholz yfirgaf félagið en tveir landar hans voru fengnir í staðinn. Garðbæingar hafa trú á því að liðið geti farið alla leið í ár. Til þess þarf þó stöðugleika en liðið tapaði of mörgum stigum gegn minni spámönnum í fyrra.

Stjarnan missti af tveimur dauðafærum á sæti í Evrópukeppni í fyrra en þetta gæti verið tímabilið þar sem boltinn fer í slána og inn.

Stjarnan: Veigar Páll Gunnarsson

Silfurskeiðin hefur beðið lengi eftir heimkomu týnda sonarins og nú er stundin runnin upp. Með uppeldisbræðurna Veigar Pál og Garðar í fremstu víglínu mæta Stjörnustrákar með nefið upp í loft og fullir sjálfstrausts í leikina í sumar.

Þjálfarinn

Logi Ólafsson er 58 ára gamall og á sínu fyrsta tímabili með liðið. Þetta er sjötta félagið sem hann þjálfar í efstu deild en hann þjálfaði síðast Selfoss í fyrra. Á að baki þrettán tímabil sem þjálfari í efstu deild (216 leikir, 103 sigrar, 55 prósent)

Nýju andlitin

Martin Rauschenberg (Esbjerg)

Michael Præst (FC Fyn)

Ólafur Karl Finsen (Selfoss)

Robert Sandnes (Selfoss)

Veigar Páll Gunnarsson (Stabæk)

Fylgstu með þessum:

Michael Præst  – 26 ára Dani sem gæti slegið í gegn á miðjunni.

Hvað er langt síðan

… liðið var ekki í efri hluta – 3 ár

… Veigar Pálll Gunnarsson spilaði á Íslandi – 10 ár

… liðið spilaði í B-deild – 5 ár  

… liðið átti markakóng deildarinnar – 2 ár

… liðið spilaði í C-deild – 8 ár

… liðið spilaði heimaleiki á alvöru grasi – 13 ár

Einkunnaspjaldið

Vörnin 3/5

Sóknin 5/5

Þjálfarinn 3/5

Breiddin 4/5

Íslandsmeistari: Aldrei

Bikarmeistari: Aldrei

Spáin:

1. sæti: ???

2. sæti: ???

3. sæti: Stjarnan

4. sæti: Breiðablik

5. sæti: Valur

6. sæti: Fylkir

7. sæti: Fram

8. sæti: ÍA

9. sæti: ÍBV

10. sæti: Þór

11. sæti: Keflavík

12. sæti: Víkingur Ó.


Tengdar fréttir

Spáin: Breiðablik hafnar í 4. sæti

Íþróttadeild Vísis og Fréttablaðsins spáir í spilin fyrir Pepsi-deild karla sem hefst þann 5. maí næstkomandi. Við spáum því að Breiðablik hafni í 4. sæti.

Spáin: Fram hafnar í 7. sæti

Íþróttadeild Vísis og Fréttablaðsins spáir í spilin fyrir Pepsi-deild karla sem hefst þann 5. maí næstkomandi. Við spáum því að Fram hafni í 7. sæti deildarinnar.

Spáin: Víkingur Ó. hafnar í 12. sæti

Íþróttadeild Vísis og Fréttablaðsins spáir í spilin fyrir Pepsi-deild karla sem hefst þann 5. maí næstkomandi. Yfirferðin hefst á tólfta og neðsta sæti deildarinnar en við spáum nýliðum Víkings frá Ólafsvík því sæti.

Spáin: Keflavík hafnar í 11. sæti

Íþróttadeild Vísis og Fréttablaðsins spáir í spilin fyrir Pepsi-deild karla sem hefst þann 5. maí næstkomandi. Við spáum því að Keflavík muni enda í 11. sæti og falla með Víkingi.

Spáin: Fylkir hafnar í 6. sæti

Íþróttadeild Vísis og Fréttablaðsins spáir í spilin fyrir Pepsi-deild karla sem hefst þann 5. maí næstkomandi. Við spáum því að Fylkir hafni í sjötta sæti.

Spáin: Þór hafnar í 10. sæti

Íþróttadeild Vísis og Fréttablaðsins spáir í spilin fyrir Pepsi-deild karla sem hefst þann 5. maí næstkomandi. Við spáum því að nýliðar Þórsara lendi í tíunda sæti og bjargi sér frá falli.

Spáin: ÍBV hafnar í 9. sæti

Íþróttadeild Vísis og Fréttablaðsins spáir í spilin fyrir Pepsi-deild karla sem hefst þann 5. maí næstkomandi. Við spáum því að ÍBV undir stjórn Hermanns Hreiðarssonar hafni í níunda sæti.

Spáin: ÍA hafnar í 8. sæti

Íþróttadeild Vísis og Fréttablaðsins spáir í spilin fyrir Pepsi-deild karla sem hefst þann 5. maí næstkomandi. Við spáum því að ÍA muni hafna í 8. sæti deildarinnar.

Spáin: Valur hafnar í 5. sæti

Íþróttadeild Vísis og Fréttablaðsins spáir í spilin fyrir Pepsi-deild karla sem hefst þann 5. maí næstkomandi. Við spáum því að Valur hafni í 5. sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×