Íslenski boltinn

Spáin: Þór hafnar í 10. sæti

Joshua Wicks.
Joshua Wicks. Mynd/Hafliði Breiðfjörð
Íþróttadeild Vísis og Fréttablaðsins spáir í spilin fyrir Pepsi-deild karla sem hefst þann 5. maí næstkomandi. Við spáum því að nýliðar Þórsara lendi í tíunda sæti og bjargi sér frá falli.

Eftir ársdvöl í næstefstu deild eru Þórsarar mættir til leiks á nýjan leik í Pepsi-deild karla.

Reynsluleysi varð liðinu að falli sumarið 2011 þegar flestir töldu liðið eiga skilið að halda sæti sínu.

Eftir rólega byrjun fóru Þórsarar á flug seinni hluta móts í fyrra. Liðið vann síðustu níu leiki sína og munaði miklu um komu framherjans Chukwudi Chijindu sem gæti endurnýjað kynnin við Þór í sumar.

Þórsarar hafa aðeins bætt við sig leikmönnum, hafa á að skipa einni bestu stuðningssveit landsins og eru reynslunni ríkari en árið 2011.

Stjarnan: Joshua Wicks

Bandaríski markvörðurinn hélt hreinu í fjórum leikjum af sjö seinni hluta síðasta sumars. Þarf að vera í stuði á milli stanganna til að Þórsarar haldi sæti sínu.

Þjálfarinn:

Páll Viðar Gíslason er er 43 ára gamall og á sínu fjórða tímabili með liðið. Hann hefur komið Þór tvisvar sinnum upp í efstu deild. Á að baki eitt tímabil sem þjálfari í efstu deild (22 leikir, 6 sigrar, 34 prósent).

Nýju andlitin:

Edin Beslija (Víkingur Ó.)

Hlynur Atli Magnússon (Fram)

Jóhann Þórhallsson (Fylkir)

Mark Tubæk (BÍ/Bolungarvík)

Fylgstu með þessum:

Mark Tubæk – Skoraði sex mörk í ellefu leikjum með BÍ/Bolungarvík í fyrra.

Hvað er langt síðan ...

... liðið hélt sér í deildinni – 20 ár

... liðið var inn á topp 3 – 21 ár

... liðið komst í bikarúrslitaleikinn – 2 ár

... liðið spilaði í C-deild – 13 ár 

... liðið fékk á sig fæst mörk í deildinni – 21 ár

... liðið var neðar en KA – 4 ár.

Einkunnaspjaldið:

Vörnin  2/5

Sóknin  2/5

Þjálfarinn  2/5

Breiddin  1/5

Íslandsmeistari: Aldrei

Bikarmeistari: Aldrei

Spáin:
1. ?

2. ?

3. ?

4. ?

5. ?

6. ?

7. ?

8. ?

9. ?

10. Þór

11. Keflavík

12. Víkingur


Tengdar fréttir

Spáin: Víkingur Ó. hafnar í 12. sæti

Íþróttadeild Vísis og Fréttablaðsins spáir í spilin fyrir Pepsi-deild karla sem hefst þann 5. maí næstkomandi. Yfirferðin hefst á tólfta og neðsta sæti deildarinnar en við spáum nýliðum Víkings frá Ólafsvík því sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×