Íslenski boltinn

Spáin: ÍA hafnar í 8. sæti

Jóhannes Karl Guðjónsson.
Jóhannes Karl Guðjónsson.
Íþróttadeild Vísis og Fréttablaðsins spáir í spilin fyrir Pepsi-deild karla sem hefst þann 5. maí næstkomandi. Við spáum því að ÍA muni hafna í 8. sæti deildarinnar.

Skagamenn endurnýjuðu kynnin við efstu deild sumarið 2012 eftir þriggja ára fjarveru. Draumabyrjun liðsins, þar sem liðið var taplaust í fyrstu sex leikjunum, gerði það að verkum að fall úr deildinni varð aldrei að áhyggjuefni á Skipaskaga. Nú þurfa Skagamenn að passa sig.

Skaginn hefur fengið Letta og Finna til liðs við sig en illa hefur gengið að fá íslenska leikmenn í hópinn. Liðið er veikara en það sem hóf leik í deildinni sumarið 2012 og hefur ekki fyllt í skarð Gary Martin sem hélt í KR um mitt tímabil. Liðið er reynslunni ríkara en tímabil númer tvö í efstu deild geta reynst erfið.

Stjarnan: Jóhannes Karl Guðjónsson

Við miklu var búist af Jóa Kalla síðastliðið sumar en hann stóð ekki alveg undir þeim væntingum. Spyrnukóngurinn þarf að gefa tóninn svo Skagamenn verði glaðir í gulu í sumar.

Þjálfarinn:

Þórður Þórðarson er 41 árs gamall og á sínu fimm tímabili með liðið. Hann kom ÍA upp í þriðju tilraun. Á að baki eitt tímabil sem þjálfari í efstu deild (22 leikir, 9 sigrar, 48 prósent)

Nýju andlitin:

Jan Mikael Berg (Finnlandi)

Maksims Rafalskis (Lettlandi)

Þórður Birgisson (KF)

Fylgstu með þessum:

Andri Adolpsson  – Ungur og efnilegur miðjumaður sem spilaði mikið í fyrra.

Hvað er langt síðan ...

... liðið varð meistari – 12 ár

... liðið var inn á topp þrjú – 6 ár

... liðið spilaði í B-deild – 2 ár  

... liðið varð bikarmeistari – 10 ár  

... liðið vann tvöfalt – 17 ár

... liðið spilaði í Evrópukeppni – 5 ár

... liðið fékk á sig fæst mörk – 10 ár

Einkunnaspjaldið:

Vörnin  3/5

Sóknin  2/5

Þjálfarinn  2/5

Breiddin  1/5

Íslandsmeistari:

18 sinnum (síðast 2001)

Bikarmeistari:

9 (2003)

Spáin:

1. sæti: ???

2. sæti: ???

3. sæti: ???

4. sæti: ???

5. sæti: ???

6. sæti: ???

7. sæti: ???

8. sæti: ÍA

9. sæti: ÍBV

10. sæti: Þór

11. sæti: Keflavík

12. sæti: Víkingur Ólafsvík


Tengdar fréttir

Spáin: Víkingur Ó. hafnar í 12. sæti

Íþróttadeild Vísis og Fréttablaðsins spáir í spilin fyrir Pepsi-deild karla sem hefst þann 5. maí næstkomandi. Yfirferðin hefst á tólfta og neðsta sæti deildarinnar en við spáum nýliðum Víkings frá Ólafsvík því sæti.

Spáin: Keflavík hafnar í 11. sæti

Íþróttadeild Vísis og Fréttablaðsins spáir í spilin fyrir Pepsi-deild karla sem hefst þann 5. maí næstkomandi. Við spáum því að Keflavík muni enda í 11. sæti og falla með Víkingi.

Spáin: Þór hafnar í 10. sæti

Íþróttadeild Vísis og Fréttablaðsins spáir í spilin fyrir Pepsi-deild karla sem hefst þann 5. maí næstkomandi. Við spáum því að nýliðar Þórsara lendi í tíunda sæti og bjargi sér frá falli.

Spáin: ÍBV hafnar í 9. sæti

Íþróttadeild Vísis og Fréttablaðsins spáir í spilin fyrir Pepsi-deild karla sem hefst þann 5. maí næstkomandi. Við spáum því að ÍBV undir stjórn Hermanns Hreiðarssonar hafni í níunda sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×