Íslenski boltinn

Spáin: Valur hafnar í 5. sæti

Rúnar Már Sigurjónsson
Rúnar Már Sigurjónsson
Íþróttadeild Vísis og Fréttablaðsins spáir í spilin fyrir Pepsi-deild karla sem hefst þann 5. maí næstkomandi. Við spáum því að Valur hafni í 5. sæti.

Valsmenn mæta til leiks í sumar með nýja menn í flestum stöðum. Liðinu hefur vegnað vel á undirbúningstímabilinu og virðist vel stemmt. Leikmannahópurinn er nokkuð breiður og léttara yfir stuðningsmönnum liðsins en oft áður.

Liðið hefur endurheimt tvo uppalda leikmenn auk þess sem Rúnar Már Sigurjónsson snýr aftur eftir Hollandsdvöl. Næstsigursælasta lið íslenskrar knattspyrnu hefur verið í lægð frá því titillinn skilaði sér í hús sumarið 2007. Fari liðið vel af stað gæti Valur vel strítt liðunum í efri hluta deildarinnar.

Stjarnan: Rúnar Már Sigurjónsson

Sókndjarfi miðjumaðurinn sló í gegn með Valsmönnum í fyrra og var þeirra langbesti maður. Var lánaður til Zwolle í Hollandi en ekkert spilað vegna meiðsla. Gæti híft Val í toppbaráttu nái hann sér heilum heilsu.

Þjálfarinn

Magnús Gylfason er 45 ára gamall og á sínu fyrsta tímabili með liðið. Þetta er fjórða félagið sem hann þjálfar í efstu deild. Á að baki sex tímabil sem þjálfari í efstu deild (103 leikir, 37 sigrar, 43 prósent).

Nýju andlitin

Arnar Sveinn Geirsson (Víkingur Ó)

Bjarni Ólafur Eiríksson (Stabæk)

Björgólfur Takefusa (Víkingur R.)

Fjalar Þorgeirsson (KR)

Iain Williamson (Grindavík)

Magnús Már Lúðvíksson (KR)

Stefán Ragnar Guðlaugsson (Selfoss)

Fylgstu með þessum:

Indriði Áki Þorláksson  – 17 ára gutti sem setti fjögur mörk í sjö leikjum í fyrra.

Hvað er langt síðan

… liðið varð meistari – 6 ár

… liðið var inn á topp þrjú – 6 ár

… liðið spilaði í B-deild – 9 ár  

… liðið varð bikarmeistari – 8 ár

… liðið átti markakóng deildarinnar – 25 ár

… liðið vann tvöfalt – 37 ár

Einkunnaspjaldið

Vörnin 3/5

Sóknin 3/5

Þjálfarinn 3/5

Breiddin 3/5

Íslandsmeistari: 20 sinnum (Síðast 2007)

Bikarmeistari: 9 sinnum (Síðast 2005)

Spáin:

1. sæti: ???

2. sæti: ???

3. sæti: ???

4. sæti: ???

5. sæti: Valur

6. sæti: Fylkir

7. sæti: Fram

8. sæti: ÍA

9. sæti: ÍBV

10. sæti: Þór

11. sæti: Keflavík

12. sæti: Víkingur Ó.

Skjáskot úr Fréttablaðinu



Fleiri fréttir

Sjá meira


×