Sigurður: Hugmyndin var mín Stígur Helgason skrifar 7. maí 2013 11:39 Sigurður Valtýsson er annar frá vinstri.
Sigurður Valtýsson, annar tveggja fyrrverandi forstjóra Existu, sagðist fyrir dómi nú fyrir hádegi hafa átt hugmyndina að þeirri fléttu að hækka hlutafé Existu um fimmtíu milljarða króna en borga einungis einn milljarð fyrir hana. Sú ákvörðun hefur nú getið af sér sakamál á hendur Lýði Guðmundssyni, fyrrverandi stjórnarformanni Existu, og Bjarnfreði Ólafssyni, lögmanni á Logos.„Ég hef aldrei kynnst öðrum eins fundi" Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, spurði Sigurð um fund sem hann, ásamt fleirum, átti með fulltrúum Fyrirtækjaskrár í júní 2009, eftir að þeim hjá Fyrirtækjaskrá varð ljóst að eitthvað væri bogið við hlutafjáraukninguna og tilkynninguna um hana frá því í desember 2008. „Þar komu fram, að mínu mati, mjög vanstillt viðhorf starfsmanna Fyrirtækjaskrár. Ég hef aldrei kynnst öðrum eins fundi," sagði Sigurður. Fulltrúar Fyrirtækjaskrár hafi lýst að þeir teldu skrána hafa verið blekkta og að þeir hygðust afturkalla hlutafjárhækkunina. Þeir hafi þó einnig gengist við því að þar innanhúss hafi mistök verið gerð. „Þeir viðurkenndu að þetta hefði sloppið í gegn fyrir handvömm ólöglærðs starfsmanns," sagði Sigurður. Þessi lýsing á fundinum er í nokkru ósamræmi við þá sem heyra mátti hjá lögmanninum Sigurmar K. Albertssyni. Hann bar einnig vitni nú í morgun og var í upphafi skýrslugjafar sinnar óskað til hamingju með afmælið af dómaranum Arngrími Ísberg. Sigurmar er 67 ára í dag. Sigurmar sat fundinn hjá Fyrirtækjaskrá sem einn af fulltrúum Existu og sagði hann hann hafa verið yfirvegaðan og „á rólegum nótum".Segjast ekki hafa vitað af áformum Nýja Kaupþings Erlendur Hjaltason, hinn fyrrverandi forstjóri Existu, kom einnig fyrir dóminn. Bæði hann og Sigurður báru að þeim hafi ekki verið kunnugt um það þegar hlutafjárhækkunin var til umræðu innan Existu að Nýja Kaupþing hefði uppi áform um að taka félagið yfir, eins og greint var frá í fjölmiðlum nokkrum dögum síðar að stæði til. Vitnaleiðslum í málinu er nú lokið og einungis málflutningur saksóknara og verjenda eftir. Hann hefst klukkan 8.30 í fyrramálið.
Tengdar fréttir Lýður kannast ekki við varnaðarorð Deloitte Lýður Guðmundsson, fyrrverandi stjórnarformaður Existu, kannast ekki við það að endurskoðandi félagsins hjá Deloitte hafi tjáð honum að 50 milljarða hlutafjáraukning Existu stæðist ekki lög og Deloitte gæti aldrei skrifað upp á hana. Hann sagðist fyrir dómi fyrr í morgun ekki muna til þess að það hafi komið fram í símtali hans og endurskoðandans Hilmars Alfreðssonar. 6. maí 2013 10:54 Deloitte kvartaði til Logos Forsvarsmenn endurskoðunarfyrirtæksins Deloitte sendu kvörtunarbréf til lögmannsstofunnar Logos þegar þeim varð ljóst að skýrsla sem endurskoðendur fyrirtækisins höfðu unnið um hlutafjáraukningu Existu hefði verið notuð til að koma henni í gegn hjá Fyrirtækjaskrá. Frá þessu greindu bæði Þorvarður Gunnarsson, forstjóri Deloitte á Íslandi, og endurskoðandinn Hilmar Alfreðsson frá fyrir dómi nú eftir hádegi. 6. maí 2013 15:06 Eftirlitsaðilar sáu ekkert athugavert Eftirlitsaðilar sáu ekkert athugavert við hlutafjáraukninguna í Existu fyrr en hálfu ári eftir að hún var um garð genginn. Þeim var þó fullkunnugt um að einungis hefði einn milljarður verið greiddur fyrir 50 milljarða hlutafjáraukningu. 6. maí 2013 12:52 Aðalmeðferð hefst í dag í málinu gegn Lýði og Bjarnfreði Aðalmeðferð í máli sérstaks saksóknara gegn Lýði Guðmundssyni og Bjarnfreði Ólafssyni verður í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. 6. maí 2013 08:50 Bjarnfreður var fullur efasemda Bjarnfreður Ólafsson, lögfræðingur á Logos, segir að hann og aðrir starfsmenn Logos hafa verið fulla efasemda um að það mundi standast að greiða einungis einn milljarð fyrir 50 milljarða hlutafjáraukningu í Existu, eins og Lýður og Ágúst Guðmundssynir gerðu í desember 2008. 6. maí 2013 11:26 Töldu öll Deloitte hafa vottað viðskiptin Fyrri degi aðalmeðferðar í Exista-máli sérstaks saksóknara er nú lokið. Vitnaleiðslum verður fram haldið í fyrramálið og að því loknu tekur málflutningur saksóknara og verjenda við. 6. maí 2013 17:17 Mest lesið Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Viðskipti innlent Dóttirin föst á amerískum tíma og minningar um ást og andarteppu Atvinnulíf Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Viðskipti innlent Bensínverð hefur lækkað Viðskipti innlent Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Viðskipti innlent Sigrún ráðin aðalbókari Viðskipti innlent Nú er tíminn fyrir þak og klæðningar: „Við horfum á veðrið, ekki dagatalið“ Samstarf Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Viðskipti erlent Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Viðskipti innlent Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Viðskipti erlent Fleiri fréttir Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Arion banki hækkar vexti Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Sigrún ráðin aðalbókari Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Húsnæði Kjötborgar til sölu Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Verðbólga hjaðnar Afkoma í samræmi við áætlanir hjá Símanum Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Sjá meira
Lýður kannast ekki við varnaðarorð Deloitte Lýður Guðmundsson, fyrrverandi stjórnarformaður Existu, kannast ekki við það að endurskoðandi félagsins hjá Deloitte hafi tjáð honum að 50 milljarða hlutafjáraukning Existu stæðist ekki lög og Deloitte gæti aldrei skrifað upp á hana. Hann sagðist fyrir dómi fyrr í morgun ekki muna til þess að það hafi komið fram í símtali hans og endurskoðandans Hilmars Alfreðssonar. 6. maí 2013 10:54
Deloitte kvartaði til Logos Forsvarsmenn endurskoðunarfyrirtæksins Deloitte sendu kvörtunarbréf til lögmannsstofunnar Logos þegar þeim varð ljóst að skýrsla sem endurskoðendur fyrirtækisins höfðu unnið um hlutafjáraukningu Existu hefði verið notuð til að koma henni í gegn hjá Fyrirtækjaskrá. Frá þessu greindu bæði Þorvarður Gunnarsson, forstjóri Deloitte á Íslandi, og endurskoðandinn Hilmar Alfreðsson frá fyrir dómi nú eftir hádegi. 6. maí 2013 15:06
Eftirlitsaðilar sáu ekkert athugavert Eftirlitsaðilar sáu ekkert athugavert við hlutafjáraukninguna í Existu fyrr en hálfu ári eftir að hún var um garð genginn. Þeim var þó fullkunnugt um að einungis hefði einn milljarður verið greiddur fyrir 50 milljarða hlutafjáraukningu. 6. maí 2013 12:52
Aðalmeðferð hefst í dag í málinu gegn Lýði og Bjarnfreði Aðalmeðferð í máli sérstaks saksóknara gegn Lýði Guðmundssyni og Bjarnfreði Ólafssyni verður í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. 6. maí 2013 08:50
Bjarnfreður var fullur efasemda Bjarnfreður Ólafsson, lögfræðingur á Logos, segir að hann og aðrir starfsmenn Logos hafa verið fulla efasemda um að það mundi standast að greiða einungis einn milljarð fyrir 50 milljarða hlutafjáraukningu í Existu, eins og Lýður og Ágúst Guðmundssynir gerðu í desember 2008. 6. maí 2013 11:26
Töldu öll Deloitte hafa vottað viðskiptin Fyrri degi aðalmeðferðar í Exista-máli sérstaks saksóknara er nú lokið. Vitnaleiðslum verður fram haldið í fyrramálið og að því loknu tekur málflutningur saksóknara og verjenda við. 6. maí 2013 17:17