Innlent

Bein útsending - Kosningapartý Stöðvar 2

Kosningapartý Stöðvar 2 er í beinni útsendingu á Vísi í kvöld, auk þess að vera í opinni dagkrá á Stöð 2.

Logi Bergmann stýrir þættinum þar sem gleðin verður í fyrirrúmi. Hann fær til sín góða gesti sem ætla að skoða kosningarnar og stjórnmálamennina út frá óhefðbundnum og skemmtilegum sjónarhóli. 

Lóa Pind Aldísardóttir mun koma reglulega inn með nýjustu talningartölur og henni til halds og trausts verður Gunnar Helgi Kristinsson stjórmálafræðingur. Sveppi, Auddi og Pétur Jóhann bregða á leik með formönnum framboðanna sem bjóða fram á landsvísu á sinn einstæða hátt, taka þá m.a. í hitaklefann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×