Margra milljóna króna eignir kyrrsettar Jón Hákon Halldórsson skrifar 31. mars 2013 08:50 Markús Máni Michaelsson, einn sakborninganna, er fyrrverandi landsliðsmaður í handbolta.
Sérstakur saksóknari hefur kyrrsett margra milljóna króna eignir þeirra sakborninga, sem grunaðir eru um brot á gjaldeyrislögum. Þar er einkum um að ræða fasteignir, skuldabréf og hlutabréf. Vísir greindi frá því í gær að sérstakur saksóknari hefði ákært fjóra menn fyrir brot á gjaldeyrislögum sem samkvæmt ákæru voru framin á átta mánaða tímabili á árinu 2009. Hinir ákærðu eru Markús Máni Michaelsson, Karl Löve Jóhannsson, Gísli Reynisson og Ólafur Sigmundsson. Í ákæru segir að heildarávinningur ákærðu af brotum sínum hafi að minnsta kosti numið 656 milljónum króna. Það þýðir að heildarávinningur hvers og eins hafi numið minnst 164 milljónum. Fyrirliggjandi sakargögn sýni að hinir ákærðu hafi að minnsta kosti gert ráðstafanir til þess að láta ávinninginn renna til aflandsfélags- eða félaga í endanlegri eigu og undir raunverulegri stjórn þeirra. Þeir hafi meðal annars stofnað aflandsfélag á Kýpur í þessu skyni. Ákærðu hafi engu að síður hafi fengið verulegar fjárhæðir greiddar á reikninga sína á Íslandi á verknaðartímabilinu. Markús hafi fengið tæpar 54 milljónir, Ólafur tæpar 11 milljónir, Karl tæpar 46 milljónir og Gísli rúmar 35 milljónir. Það er á grundvelli þessara upphæða sem sérstakur saksóknari hefur kyrrsett eigur sem skráðar eru á hina ákærðu og krefst þess jafnframt að umræddar eignir verði gerðar upptækar með dómi. Í tilfelli Markúsar er þar meðal annars um að ræða helmingseignarhlut í fasteign að Skerplugötu í Reykjavík, hlutabréf í Högum og Icelandair Group, ríkisskuldabréf og hlutdeildarskirteini í verðbréfasjóðum. Í tilfelli Karls er þar um að ræða helmingshlut í fasteign í Goðatúni í Reykjavík og 4,4 milljónir króna inni á bankareikningi hjá Íslandsbanka. Í tilfelli Gísla er þar um að ræða helmingseignarhlut í fasteign að Holtabyggð í Hrunamannahreppi. Eignir Ólafs voru ekki kyrrsettar né heldur krafist upptöku á þeim.
Mest lesið Skims opnar í Kringlunni Viðskipti innlent „Listamaðurinn“ leitar að þeim bestu í íslensku atvinnulífi Framúrskarandi fyrirtæki EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Samstarf Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Viðskipti innlent Uggandi yfir afstöðu VR Viðskipti innlent Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Viðskipti innlent Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Viðskipti innlent Stýrivextir áfram átta prósent Viðskipti innlent Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Viðskipti erlent Fleiri fréttir Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Sjá meira