Viðskipti innlent

Skuldatryggingaálag Íslands ekki lægra síðan í árslok 2007

Skuldatryggingaálag Íslands er komið niður í 140 punkta samkvæmt upplýsingum frá CMA gagnaveitunni. Hefur álagið ekki verið lægra síðan í lok ársins 2007.

Skuldatryggingaálag Íslands hefur stöðugt lækkað frá því í fyrra sumar. Það fór hinsvegar hæst í í 312 punkta í júní í fyrra og hefur því lækkað um 172 punkta síðan þá.

Skuldatryggingaálag upp á 140 punkta þýðir að það þarf að greiða 1,4% af nafnverði skuldabréfs til fimm ára til að tryggja það gegn greiðslufalli.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×