Strokið fjórum sinnum af geðdeild Helga Arnardóttir skrifar 25. febrúar 2013 19:52
Tuttugu og tveggja ára piltur sem var sviptur sjálfræði tímabundið vegna geðraskana og eiturlyfjaneyslu í byrjun janúar strauk í fjórða skipti af geðdeild landspítalans í gærkvöld. Ekki er vitað hvar hann er niðurkominn í dag. Móðir hans segist alls staðar koma að lokuðum dyrum og segir algjört úrræðaleysi í kerfinu gagnvart svona veikum einstaklingum. Saga Hersis Þórs Péturssonar hefur verið raunaleg síðustu ár. Móðir hans Þorbjörg segir hann hafa byrjað í neyslu kannabisefna um sextán ára aldur. „Hann fer upp á Stuðla og ekkert gekk. Hann vildi enga hjálp." segir Þorbjörg Steinarsdóttir, móðir Hersis. Samhliða aukinni kannabisneyslu komu fram alvarlegar geðraskanir og ranghugmyndir. Hersir hefur hvorki tollað í skólakerfinu né í vinnu til langs tíma og er langt leiddur fíkill í dag. Tvítugur byrjaði hann að leigja sér herbergi úti í bæ og þá missti hann tökin. „Svo erum við komin í stöðu að um jólin þurftum við að svipta hann sjálfræði." Það endaði með því um áramótin að Hersir var handtekinn vegna óspekta og var komið inn á geðdeild en sleppt þaðan eftir fimm tíma. „Svo var það þessi þrautarganga að koma honum inn þar og það gekk nú ekki áfallalaust. Við ætluðum aldrei að koma honum inn vegna þess að hann var ekki nógu hættulegur sjálfum sér og öðrum," segir Þorbjörg. Eftir nokkrar tilraunir fjölskyldunnar með aðkomu lögreglu var hann sviptur sjálfræði tímabundið 11.janúar síðastliðinn og hefur Hersir dvalið inni á geðdeild. „Svo kemur hin þrautargangan, það er, að halda honum inn á geðdeild. Hann hefur verið þar núna gegn hans vilja - það mikið gegn hans vilja að hann hefur nú strokið í fjórða skiptið í gærkvöld." „Ég fæ þau svör að þetta sé ekki réttargeðdeild og að fólkinu eigi ekki að líða eins og þetta sé fangelsi, það eigi að fara að laga girðinguna, sem er náttúrulega aldrei gert. Síðan ætla þau að ná honum aftur og þá verður hann handtekinn í sjöunda skipti." Ekkert hefur heyrst frá Hersi, í nótt eða í dag og óttast Þorbjörg hvar hann sé niðurkominn. „Nú veit ég ekki hvert hann fer því núna forðast hann alla þá staði sem hann hefur verið handtekinn á." Þorbjörg segir engin úrræði fyrir svona mikið veikt fólk eins og Hersir. „Það er eins og það sé engin staður fyrir þá sem eru læstir inni gegn sínum vilja. Við göngum alls staðar á veggi, það er ekkert ferli sem við getum sótt um og sagt að við séum með veikan einstakling, þó svo að við séum með pappíra frá læknum." Starfsfólk geðdeildar Landspítalans vildi ekki tjá sig um málið þegar eftir því var leitað. Hersir Þór er 1.86 á hæð, skolhærður með jafnsítthár niður á axlir. Klæddur í dökkbláar buxur, svarta flíspeysu með svartan trefil um hálsinn.Þeir sem verða varir við ferðir hans eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna í 444-1000.
Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Innlent Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Innlent Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Innlent Fylgstu með lægðinni í beinni Veður Fleiri fréttir Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Pawel tekur við af Sigmari sem þingflokksformaður Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Leita ökumanns sem ók á dreng á reiðhjóli „Þá tökum við auðvitað tillit til þess og hlustum“ Sjá meira