NBA: Denver stöðvaði sigurgöngu LA Clippers - 45 stig Anthony ekki nóg Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. janúar 2013 09:00 Mynd/AP
Sautján leikja sigurganga Los Angeles Clippers í NBA-deildinni í körfubolta endaði í nótt þegar liðið heimsótti Denver Nuggets. Það dugði ekki New York Knicks að Amare Stoudemire snéri aftur eða það að Carmelo Anthony skoraði 45 stig. Los Angeles Lakers tapaði einnig sínum leik í nótt og hefur nú aftur tapað fleiri leikjum en liðið hefur unnið.Danilo Gallinari skoraði 17 stig og var einn af sex leikmönnum Denver Nuggets með tíu stig eða meira þegar liðið vann 92-78 sigur á Los Angeles Clippers. Clippers-liðið var búið að vinna 17 leiki í röð sem var lengsta sigurgangan í NBA-deildinni síðan að Boston Celtics vann 19 í röð í lok árs 2008. Kenneth Faried var með 14 stig og 11 fráköst í áttunda heimasigri Denver í röð og Andre Miller var með 12 stig og 12 stoðsendingar. Blake Griffin og Eric Bledsoe voru stigahæstir hjá Los Angeles Clippers með 12 stig hvor.Portland Trail Blazers vann 105-100 sigur á New York Knicks í New York og það þrátt fyrir að Carmelo Anthony skoraði 45 stig fyrir Knicks og að Amare Stoudemire kom inn eftir meiðsli. Amare Stoudemire spilaði sinn fyrsta leik á tímabilinu og var með 6 stig og 1 fráköst á 17 mínútum. Nicolas Batum skoraði 26 stig fyrir Portland, Damian Lillard var með 12 stig og LaMarcus Aldridge bætti við 19 stigum og 14 fráköstum. J.R. Smith var með 28 stig og 11 fráköst hjá New York.Jrue Holiday var með 26 stig og 10 stoðsendingar og Evan Turner bætti við 22 stigum og 13 fráköstum þegar Philadelphia 76ers vann 103-99 útisigur á Los Angeles Lakers. Lakers-liðið er þar með aftur dottið niður fyrir 50 prósent sigurhlutfall. Kobe Bryant skoraði 36 stig og Steve Nash var með 12 stig og 10 stoðsendingar.Vince Carter skoraði 23 stig og þeir O.J. Mayo og Darren Collison voru báðir með 15 stig þegar Dallas Mavericks endaði sex leikja taphrinu með 103-94 sigri á Washington Wizards. Chris Kaman skoraði 12 stig og Shawn Marion var með 11 stig og 14 fráköst. Bradley Beal skoraði 22 stig fyrir Wizards-liðið.Úrslit allra leikja í NBA-deildinni í nótt: Washington Wizards - Dallas Mavericks 94-103 New York Knicks - Portland Trail Blazers 100-105 Detroit Pistons - Sacramento Kings 103-97 New Orleans Hornets - Atlanta Hawks 86-95 Denver Nuggets - Los Angeles Clippers 92-78 Los Angeles Lakers - Philadelphia 76ers 99-103
NBA Mest lesið Norska landsliðið flúði hótelið sitt Fótbolti Sótillur eftir tapið: „Sóa fyrirhöfn heillar þjóðar“ Fótbolti Arnar tók upp hanskann fyrir FIFA: „Þetta virkar ekki þannig“ Fótbolti Henderson tjáir sig í fyrsta sinn eftir fallið vandræðalega Fótbolti „Hreinlega spilling í gangi ítrekað“ Fótbolti FIFA hafnaði áfrýjun Frakka Fótbolti FIFA styður dómarann sem Trump sagði að væri grunsamlegur Fótbolti Evrópuþingmenn kalla eftir rannsókn á Infantino Fótbolti Hvers vegna tekur Halldór ekki strax við Val? Íslenski boltinn Veikindi herja á norska liðið Fótbolti Fleiri fréttir Frank Aron Booker yfirgefur Val og semur við Álftanes Þungt tap gegn Tyrkjum og Svíar bíða Berglind næststigahæst á EM 16 ára Berglind mögnuð er Ísland náði sögulegum árangri Elvar snýr aftur til Litháens Jón Axel spilar á Kanaríeyjum Patrick Ewing fékk aftur starf á gólfinu í NBA-deildinni Valsmenn fá til sín stigakóng síðasta tímabils „Maður hefur spilað körfubolta lengi“ „Komið með þessa NBA karla, við erum klárir“ Uppgjör: Bretland – Ísland 86-88 | Enn einn dramatískur sigur Íslands og HM draumurinn lifir Íslensku stelpurnar unnu stórkostlegan sigur á Serbum Sixers að blanda sér í baráttuna um LeBron James Prófa nýja körfuboltareglu með einu vítaskoti „Ég er Grindvíkingur en vill bara svo til að ég fór í Keflavík“ Elvar: „Við vorum flatari og skrefinu eftir á“ Uppgjör: Ísland - Ítalía 83-102 | Strákarnir réðu ekki við skotsýningu Ítala Jaylen Brown til Philadelphia 76ers Fengið morðhótanir eftir viðskiptin við Caitlin Clark „Frábært að fá Martin aftur“ Fleiri augu á mér í þessari deild „Ég talaði við fullt af liðum en leist best á Stjörnuna“ Lárus verður aðstoðarþjálfari Grindavíkur Kawhi Leonard aftur til Kanada Tómas Valur færir sig á milli skóla í sama fylki Grindavík valin á kvikmyndahátíð NBA og keppir við Jordan „Nýi skólinn“ og Norðurlandablæti í Bilbao Ja Morant skipt til Trail Blazers LeBron James yfirgefur Lakers Semja við leikmanninn sem var með 34 stig að meðaltali á móti þeim í fyrra Sjá meira