NBA í nótt: Boston sýndi sitt rétta andlit Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 8. janúar 2013 09:00 Garnett treður yfir Carmelo Anthony í leiknum í nótt. Mynd/AP
Boston Celtics minnti á sig með góðum sigri á New York Knicks í NBA-deildinni í körfubolta í nótt, 102-96. New York hefur verið eitt besta lið deildarinnar í vetur og er liðið í öðru sæti Austurdeildarinnar, rétt á eftir meisturum Miami Heat. Boston hefur hins vegar átt misjöfnu gengi að fagna í vetur en hefur þó verið að rétta úr kútnum að undanförnu. Þetta var þriðji sigur liðsins í röð í nótt en þrátt fyrir það er Boston í áttunda sæti Austurdeildarinnar. Paul Pierce skoraði 23 stig fyrir Boston í nótt og Kevin Garnett var með nítján stig og tíu fráköst. Liðið var án Rajon Rondo sem tók út leikbann. Carmelo Anthony var með 20 stig fyrir New York en nýtti aðeins sex af 26 skotum sínum í leiknum, auk þess að lenda í villuvandræðum. JR Smith var stigahæstur með 24 stig. Botnlið Austurdeildarinnar, Washington, vann afar óvæntan sigur á Oklahoma City, 101-99. Bradley Beal tryggði Washington sigurinn með körfu þegar 0,3 sekúndur voru eftir af leiknum. Washington hafði tapað þrettán af síðustu fjórtán leikjum sínum fyrir þennan en liðið en þess má þó geta að fyrr í vetur vann liðið einnig óvæntan sigur á Miami Heat. Beal og Martell Webster voru með 22 stig fyrir Washington í nótt og Kevin Durant 29 stig fyrir Oklahoma City. Portland vann Orlando, 125-119, í framlengdum leik þar sem LaMarcus Aldridge var með 27 stig og tíu fráköst. Þetta var níunda tap Orlando í röð.Úrslit næturinnar: Washington - Oklahoma City 101-99 NY Knicks - Boston 96-102 Chicago - Cleveland 118-92 New Orleans - San Antonio 95-88 Utah - Dallas 100-94 Sacramento - Memphis 81-113
NBA Mest lesið Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti Leyfislaus CrossFit-dómari og keppandinn hans í tveggja ára bann Sport Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Fótbolti Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Handbolti „Allar spár kolrangar og vitlausar“ Íslenski boltinn „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Enski boltinn Samkomulag náðst milli Iraola og Liverpool Fótbolti Manchester United kaupir Ederson Fótbolti Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Enski boltinn John Barnes greindist með krabbamein Fótbolti Fleiri fréttir Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Sjá meira