Nikola Karabatic hefur gengið til liðs við Barcelona. Sá franski verður í herbúðum Börsunga næstu fjögur árin.
Barcelona beið lægri hlut í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu um helgina gegn Hamburg. Í stað þess að sleikja sárin hafa þeir styrkt stöðu sína með samningnum við Karabatic.
Leikstjórnandinn 29 ára hefur spilað með Montpellier undanfarin ár. Hann hefur unnið allt sem hægt er að vinna með franska landsliðinu sem hefur verið óstöðvandi undanfarin ár.
Mikið var fjallað um Karabatic í vetur þegar upp komst að leikmenn Montpellier og makar höfðu veðjað á úrslit í leikjum liðsins.
Karabatic til Barcelona

Tengdar fréttir

Karabatic tók þátt í að greiða upp eigin samning
Nikola Karabatic fékk sig lausan frá Montpellier með því að taka þátt í að greiða upp eigin samning.

Karabatic leystur undan samningi
Nikola Karabatic, einn besti handknattleiksmaður heims síðustu ár, er án félags eftir að Montpellier rifti samningi hans í gær.

Sex leikja bann fyrir veðmálasvindl
Einn besti handboltamaður heims, Frakkinn Nikola Karabatic, og sex aðrir leikmenn voru í gær úrskurðaðir í sex leikja bann vegna veðmálahneykslisins sem tröllreið öllu síðari hluta 2012.

Karabatic á leið til Barcelona
Franskir fjölmiðlar segja líklegt að Nikola Karabatic sé á leið til Barcelona á Spáni.

Leikbanni Karabatic aflétt | Dómsmálinu ólokið
Áfrýjunardómstóll franska handboltasambandsins aflétti í dag sex leikja banni Nikola Karabatic og tveggja annarra leikmanna vegna ásakana um veðmálasvindl og hagræðingu úrslita.