Óljóst um framkvæmdir Dýrafjarðarganga Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar 21. desember 2013 18:25 mynd/Róbert Reynisson
Dýrafjarðargöng yrðu mikilvæg samgöngubót. Þetta kom fram í svari Hönnu Birnu Kristjánsdóttur innanríkisráðherra við fyrirspurn Lilju Rafneyjar Magnúsdóttur alþingismanns um göngin og samgönguáætlun. Þetta kemur fram á vef Bæjarins besta á Ísafirði. Innanríkisráðherra var einnig spurð að því hvort enn stæðist að framkvæmdir við göngin hæfust árið 2016 að loknum framkvæmdum við Norðfjarðargöng. Það er fyrirhugsað í samgönguáætlun og þar er fyrirhugað að framkvæmdum við göngin ljúki árið 2018. „Miðað við áætlanir mun framkvæmdum við Norðfjarðargöng ljúka árið 2017. Eins og fram kemur í nefndaráliti meiri hluta umhverfis- og samgöngunefndar við afgreiðslu 12 ára samgönguáætlunar í júní 2012 var lagt til að framkvæmdum við Dýrafjarðargöng yrði flýtt þannig að þau færðust yfir á framkvæmdatímabilið 2015–2018 og verði þá lokið. Þetta var ein framkvæmd af mörgum sem ætlunin var að flýta með þeirri ákvörðun fyrri ríkisstjórnar að beina viðbótarfé til samgöngumála á því árabili sem samgönguáætlun tekur til,“ segir í svari ráðherra. Þá segir að fjárþörf verkefna á næstu samgönguáætlun komi í ljós þegar vinnu við þær lýkur, en það verði á næstu vikum. Engu er svarað um hvort Dýrafjarðargöng komi til framkvæmda, hvort heldur er á árinu 2016 eða þegar að lokinni vinnu við Norðfjarðargöng. „Ég hef miklar áhyggjur af því að í endurskoðaðri samgönguáætlun sem nú er verið að vinna að verði göngunum ýtt fram í tímann. Ég vona að svo verði ekki, en ég hef það á tilfinningunni, miðað við þessi svör,“ segir Lilja Rafney í samtali við Bæjarins besta. „Það er auðvitað alltaf togstreita um jarðgöng. Ég verð bara eins og allir aðrir að bíða og sjá hvort menn fara að raða upp á nýtt og seinka Dýrafjarðargöngum enn eina ferðina. Þetta hlýtur að skýrast fljótlega,“ sagði Lilja Rafney.
Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Fleiri fréttir Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Sjá meira