Nýjar aðferðir spara bæði fjármagn og sársauka Eva Bjarnadóttir skrifar 17. desember 2013 10:00 Auður Axelsdóttir Fréttablaðið/Stefán
Auður Axelsdóttir iðjuþjálfi telur nauðsynlegt að þróa nýjar aðferðir til að taka á alvarlegum geðrænum veikindum, líkt og þeim sem koma upp þegar einstaklingar eru nauðungarvistaðir. Hún telur að aukin stuðningur inni á heimilum þegar upp koma bráðatilvik geti sparað fjölskyldum bæði fjármagn og sársauka. Í starfi sínu lítur hún til finnskrar aðferðar sem byggir á samstarfi fagfólks, fjölskyldu og þess sem veikist. „Við höfum séð það þegar við förum á staðinn til að styðja fjölskyldur í bráðatilvikum, að þá er ekki ljóst hvort þurfi að nauðungarvista eða hvernig maður eigi að gera það, og upplýsingarnar liggja ekki á lausu,“ segir Auður sem er forstöðumaður Geðheilsu – eftirfylgdar, samfélagsgeðþjónustu innan Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Þar er meðal annars stutt við geðsjúkt fólk og aðstandendur þeirra á heimilum þeirra.Opið samtal við sjúklinga Í starfi sínu lítur Auður til aðferðar sem þróuð hefur verið í Vestur-Lapplandi í Finnlandi undanfarin þrjátíu ár. Aðferðin heitir „opið samtal“ (e. open dialog) og gengur út á að aðstoða fólk í geðrofi, en geðrof er sturlunarástand þar sem raunveruleikatengsl verða óljós og viðkomandi upplifir stjórnleysi í aðstæðum. Farið er á vettvang og unnið með fjölskyldu og öðrum í nærumhverfi sjúklingsins. „Við erum að aðeins að fikra okkur áfram með þessi prinsipp sem þeir styðjast við, að vinna í heimahúsum og að hægt sé að ná í okkur þegar upp koma erfiðar aðstæður, þótt teymið okkar sé það lítið að við getum ekki sinnt öllu sem kemur upp,“ útskýrir Auður. Í Vestur-Lapplandi starfar teymi sem fjölskyldur geta leitað til allan sólarhringinn. Þegar upp koma bráð veikindi mæta tveir starfsmenn teymisins á staðinn og stýra umræðum með sjúklingi og aðstandendum. „Þau fá fram öll sjónarhorn frá fjölskyldunni og farið er yfir það hvers vegna viðkomandi veiktist. Kom eitthvað upp á? Hvað er viðkomandi að tjá? Hvað er að? Það er engin ákvörðun eða umræða tekin nema með öllum hópnum og þeim sem er veikur líka,“ segir Auður, en fagfólkið kemur úr öllum heilbrigðisstéttum.Munur á afstöðu til geðrofs Auður segir grundvallarmun vera á afstöðu finnsku aðferðarinnar til geðrofs og því sem þekkist hér á landi. „Það er ekki litið á geðrof sem sjúkdóm sem sé kominn til að vera, heldur líðan og ástand. Því viðkomandi getur hafa lent í aðstæðum sem sál og líkami réðu ekki við,“ segir hún. Hún segir fagfólkið koma inn í aðstæðurnar án þess að hafa fastmótaðar skoðanir eða verklag sem þurfi að fylgja. „Það er ekki byrjað á því að nota lyf – það er byrjað á því að tala saman. Og oftast kemur eitthvað upp sem er hægt að ræða og leysa, einhver samskiptamynstur eða áföll eða annað sem hefur verið erfitt fyrir alla fjölskylduna og einn veikist af því.“Að opna og hlusta Auður segist hafa prófað sig áfram með þessar aðferðir. „Ég reyni að koma inn og mæta viðkomandi og fjölskyldunni á þeirra forsendum. Sá sem er í geðrofi hefur alltaf eitthvað að segja, honum líður illa. Að afgreiða hann sem einhvern sem ekki er hægt að ræða við getur haft slæmar afleiðingar,“ segir hún. „Ég held að bataferlið geti byrjað miklu fyrr ef við erum tilbúin til að opna og hlusta á það sem einstaklingurinn er að segja.“Fordómar í heilbrigðisstétt Auður bendir á að fordómana sé ekki síður að finna innan heilbrigðisstéttarinnar. „Ég lærði til dæmis í náminu mínu að maður ætti að halda ákveðinni fjarlægð og ekki að hlusta á það sem viðkomandi tjáir í geðrofi,“ segir hún, en bætir við að hún hafi fyrir löngu hafnað þeim hugmyndunum. „Það þarf að endurmennta heilbrigðisstarfsfólk, því ef viðkomandi einstaklingur þarf að nota veikindin sín til að vera í togstreitu við kerfið, við heilbrigðisstarfsfólk og kannski fjölskylduna sem hefur neyðst til þess að grípa inn í, þá segir það sig sjálft að auðvitað tekur batinn lengri tíma,“ segir hún og bætir við að hún hafi fyrir löngu hafnað hugmyndunum sem kynntar voru í náminu.Alúð þegar gripið er inn í „Það eru auðvitað bara mannréttindi að á mann sé hlustað. Ég veit að það þarf í sumum tilfellum að taka ráðin af fólki og nauðungarvista það. Þá er notuð þessi hefðbundna skilgreining að viðkomandi sé hættulegur sjálfum sér eða öðrum. Það þarf þá að grípa inn í, en við þurfum að gera það af allri þeirri alúð sem við getum notað og líta geðrofið öðrum augum."
Tengdar fréttir Á annað hundrað vistaðir nauðugir Ár hvert er á annað hundrað manns nauðungarvistað á sjúkrahúsi vegna alvarlegra geðsjúkdóma. 15. desember 2013 14:17 Vopnaðir verðir og lögregluvald Sigríður Örnólfsdóttir var í tvígang nauðungarvistuð í langvinnri baráttu við geðsjúkdóm, sem hófst fyrir sautján árum í kjölfar þess að ungur sonur hennar lenti í lífshættu. 15. desember 2013 15:30 Létta ábyrgðinni af fjölskyldum geðsjúkra Aðstandendur geðsjúkra og fagfólk gagnrýna að fjölskyldur séu látnar sækja um nauðungarvistun fyrir ástvini. Á Akureyri hefur þróast ólíkt verklag við að nauðungarvista fólk, þar sem félagsþjónustan er umsækjandinn. 16. desember 2013 06:00 Mest lesið Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Innlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ Innlent Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Innlent Ákærður fyrir að hafa stungið tvo gyðinga Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Dómsmálaráðherra boðar herta löggjöf í vændismálum Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Svör Kristrúnar minni meira á Keir Starmer en Mette Fredriksen Flugvallarstæði Hvassahrauns á mesta áhættusvæði hraunflæðis Svæðisskrifstofur Guðmundar Inga líklega slegnar út af borðinu Helmingur gæti ekki mætt 100 þúsund króna útgjöldum Sjá meira
Á annað hundrað vistaðir nauðugir Ár hvert er á annað hundrað manns nauðungarvistað á sjúkrahúsi vegna alvarlegra geðsjúkdóma. 15. desember 2013 14:17
Vopnaðir verðir og lögregluvald Sigríður Örnólfsdóttir var í tvígang nauðungarvistuð í langvinnri baráttu við geðsjúkdóm, sem hófst fyrir sautján árum í kjölfar þess að ungur sonur hennar lenti í lífshættu. 15. desember 2013 15:30
Létta ábyrgðinni af fjölskyldum geðsjúkra Aðstandendur geðsjúkra og fagfólk gagnrýna að fjölskyldur séu látnar sækja um nauðungarvistun fyrir ástvini. Á Akureyri hefur þróast ólíkt verklag við að nauðungarvista fólk, þar sem félagsþjónustan er umsækjandinn. 16. desember 2013 06:00