Erlent

Twilight sópaði að sér óeftirsóttu verðlaununum

Síðasta myndin í Twilight myndaröðinni, Twilight Saga: Breaking Dawn Part 2, sópaði að sér hinum óeftirsóttu Razzie verðlaunum við hátíðlega athöfn í Hollywood í gærkvöldi.

Verðlaunin eru veitt þeim myndum sem þóttu hvað verstar á síðasta ári. Myndin fékk samtals sjö verðlaun, meðal annars verðlaun sem versta myndin og leikkonan Kristen Stewart fékk verðlaun sem versta leikkona í aðalhlutverki.

Þá var Adam Sandler valinn versti leikari í aðalhlutverki fyrir leik sinn í myndinni That's My Boy. Verðlaunaafhendingar í kvikmyndageiranum eru nú daglegur viðburður en þær munu ná hámarki í kvöld þegar Óskarsverðlaunahátíðin fer fram í Hollywood.

Í spilaranum hér fyrir ofan má sjá stiklu úr Twilight Saga: Breaking Dawn Part 2.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×