Ráðherra fagnar samkomulagi um eyðingu efnavopna Jón Júlíus Karlsson skrifar 17. september 2013 13:13 Gunnar Bragi Sveinsson, utanríkisráðherra. Mynd/Stefán
Gunnar Bragi Sveinsson, utanríkisráðherra, fagnar samkomulagi Bandaríkjanna og Rússlands um eyðingu efnavopna í Sýrlandi. Hann segir það raunverulegt skref í átt að því að binda enda á borgarastríðið sem geisað hefur í landinu á undanförnum misserum. „Samkomulagið sem liggur fyrir gefur von um að hægt verði að koma böndum á efnavopnin. Við fögnum því að Bandaríkin og Rússland munu halda áfram góðu samstarfi og hvetjum þau til að vinna í sameiningu að því að tryggja einingu í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna um aðgerðir sem stöðva blóðbaðið í Sýrlandi,“ segir utanríkisráðherra. Hann segir deilurnar í Sýrlandi ekki verða leystar með hervaldi og íslensk stjórnvöld styðji friðarumleitanir sem tryggi íbúum landsins mannréttindi, umbætur og lýðræðisþróun. Utanríkisráðherra ítrekar fordæmingu á efnavopnaárásum í Sýrlandi, sem nú hafa verið staðfestar af rannsóknarteymi Sameinuðu þjóðanna. „Notkun efnavopna er stríðsglæpur og alvarlegt brot á alþjóðalögum. Þeir aðilar sem stóðu fyrir slíkum árásum verða að sæta ábyrgð,“ segir ráðherra. Gunnar Bragi segir stjórnvöld í Sýrlandi bera meginábyrgð á þeirri vargöld sem þar ríkir og upplýsingar sem fram hafi komið bendi til þess að þau beri ábyrgð á efnavopnaárásum sem gerðar hafa verið. „Það er krafa alþjóðasamfélagsins að brugðist sé við af festu þegar alþjóðalög eru þverbrotin með slíkum ódæðisverkum. Niðurstöður rannsóknarteymis Sameinuðu þjóðanna staðfesta hversu brýnt það er að aðildarríki öryggisráðsins sameinist um viðbrögð og aðgerðir vegna atburða liðinna vikna og mánaða.“
Mest lesið Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Innlent Trump hjólar í páfa Erlent Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Innlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Fleiri fréttir Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Miðflokkurinn úr leik í Árborg Krefja Ingu svara við leikskólaáformum Samfylkingarinnar „Við lítum þetta mál mjög alvarlegum augum“ Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi „Það er ekkert bjart yfir okkur akkúrat í dag“ Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Drengurinn kominn heim til sín Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Gera ekki aðra atlögu Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Sjá ekki fyrir endann á ástandinu í fangelsunum Flugstjórinn þögull sem gröfin Lækka gjöld í sveitarfélaginu og fangaverðir segja kerfið komið að þolmörkum Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjá meira