Íslenski boltinn

Mawejje kemur aftur til ÍBV

Mawejje í leik gegn KR.
Mawejje í leik gegn KR.
Eyjamenn fengu góðar fréttir í dag en Úgandamaðurinn Tonny Mawejje staðfestir við fjölmiðla í heimalandinu að hann sé að ganga frá nýjum samningi við ÍBV.

Mawejje hefur leikið með ÍBV síðustu fjögur sumur og staðið sig með miklum sóma. Hann varð samningslaus um áramótin.

Maweeje segir við Kawowo Sports að hann hafi verið að ganga frá samningi við annað félag en það mál hafi ekki gengið upp.

Því sé hann á leiðinni til Íslands enn eitt árið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×