20 milljóna króna ölmusuferð Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 21. febrúar 2013 07:30 Stefna Grindavíkur er að hlúa vel að yngri flokkum félagsins og byggja þannig upp til framtíðar.fréttablaðið/daníel "
Við fórum í björgunarleiðangur – svokallaða ölmusuferð til Reykjavíkur,“ segir Jónas Þórhallsson, formaður knattspyrnudeildar Grindavíkur. Taka þurfti til í fjárhagsmálum deildarinnar og stendur sú vinna yfir. „Það er ekkert að fela hjá okkur. Við erum lögaðilar í félagsstarfi og það er allt uppi á borði hjá okkur," segir Jónas Þórhallsson, formaður knattspyrnudeildar Grindavíkur. Félagið birti á heimasíðu sinni ársskýrslu stjórnarinnar þar sem farið var yfir starfsárið á hreinskilnislegan máta. Til að mynda var viðurkennt að mistök hefðu verið gerð með því að ráða bæði Guðjón Þórðarson sem þjálfara liðsins í fyrra sem og Sigurð Jónsson árið 2006. Bæði þessi ár féll liðið úr efstu deild. Þá var sagt frá skuldastöðu félagsins og ótrúlegri ferð til Reykjavíkur sem skilaði 20 milljónum í kassann eftir „nokkurra mínútna fundi" eins og það var orðað í skýrslunni. Þetta var gert í nóvember árið 2011.Vildu gjalda til baka „Við fórum í björgunarleiðangur – svokallaða ölmusuferð til Reykjavíkur. Það var komið gat í okkar áætlanir sem við þurftum að bregðast við og var þetta uppskeran," sagði Jónas en viðkomandi fyrirtæki sem leitað var til starfa í Reykjavík og eru þjónustuaðilar í sjávarútveginum. „Þetta eru fyrirtæki sem hafa átt langt og farsælt samstarf við Grindvíkinga og vildu gjalda það til baka. Það voru margir sem komu að þessu og þetta var niðurstaðan," segir Jónas og bætir við að um auglýsingasamninga hafi verið að ræða. Jónas segir að áfram sé stefnt að því að grynnka á skuldum deildarinnar. Hún var rekin með tæplega fjögurra milljóna króna tapi á síðasta ári og er með fimmtán milljón króna yfirdráttarlán í banka. Verkefnið er þó erfitt því félagið verði af miklum tekjum með því að missa sæti sitt í efstu deild karla, auk þess sem mun meiri ferðakostnaður fylgi því að spila í 1. deildinni. „Ég er þó alls ekki að kvarta undan því enda þurfa lið utan af landi að koma oft suður yfir tímabilið. Við kvörtum ekki yfir því að fara til þeirra," sagði Jónas en deildin hefur meðal annars gripið til óhefðbundinna aðgerða til að lækka launakostnað, eins og Fréttablaðið hefur áður fjallað um.Ætlum að ráðast á yfirdráttinn „Launakostnaður knattspyrnufélaga er víða 80-90 prósent af heildarkostnaði og er það allt of mikið. Við höfum náð því niður og er ætlunin að ráðast á þennan yfirdrátt. En það er eina skuldin okkar – við erum ekki með nein langtímalán eða neitt slíkt," ítrekar Jónas. Hann segir að markmið félagsins sé ávallt að ná árangri en hann gerir raunhæfar væntingar til liðsins nú í sumar. „Við erum með marga unga og efnilega stráka og ætlum ekki að setja of mikla byrði á þeirra herðar með því að segjast ætla að fara strax upp um deild. En ef okkur lánast að fá sterka leikmenn til félagsins fyrir sumarið þá er allt hægt," segir Jónas en félagið skoðar nú að fá til sín erlenda leikmenn. En helsta markmiðið með starfi deildarinnar snýr fyrst og fremst að uppbyggingu knattspyrnunnar innan frá, að sögn Jónasar. „Við ætlum ekki að koma fram með yfirlýsingar um að verða Íslandsmeistari. Okkar mottó í dag er að efla okkar yngri flokka. Við erum stoltir af okkar starfi – við lentum í ólgusjó en erum að vinna okkur upp úr honum."
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Tugir hlupu af stað í Bakgarðshlaupinu Sport Lærði að ganga og tala upp á nýtt: „Þessi röskun er ekkert grín“ Sport Elísa rétt missti af silfri: „Svo kemur þetta helvítis sikk sakk“ Sport Orri áfram heitur á Spáni Fótbolti Grindavík - Tindastóll 85-80 | Gáfu færi á sér en fögnuðu fyrsta sigri Körfubolti Sjáðu mörkin: Frábær Doku og aukaspyrnan sem rúllaði í mark Liverpool Enski boltinn Guardiola hvatti West Ham og uppskar hlátur Enski boltinn Kristall skoraði af 45 metra færi en gullið rann úr greipum í vító Fótbolti Óli Óla: Mér líður vel í Skagafirðinum líka Körfubolti Alvöru garðpartý Valsmanna á pallinum hjá Magnúsi Handbolti Fleiri fréttir Fullkomin byrjun Þróttara heldur áfram Sjáðu magnaða endurkomu KR og flautumark Fram Umfjöllun og viðtöl: ÍA - Keflavík 1-3 | Nýliðarnir hirtu stigin þrjú gegn Skagamönnum Landsliðskonan sögð löt en svaraði svo með flottum leik Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - KR 2-3: Halda áfram að kremja mótherjana eins og skordýr Fylgist ekki með umræðunni um starf sitt: „Maður er samt ekkert vitlaus“ Bragi Karl skoraði í fyrsta sigri Njarðvíkinga Ólafur Ingi hundfúll „Ég er búinn að vera að bíða lengi eftir þessu tækifæri“ Umfjöllun: Breiðablik - FH 3-3 | Sex marka jafntefli í Kópavogi Uppgjörið: Fram - Valur 3-2 | Byström kom inná og skoraði sigurmark í þriðja sigri Fram í röð Umfjöllun og viðtöl: Víkingur - Þór 6-0 | Nýliðar teknir í kennslustund Hræðileg en sanngjörn úrslit: „Við þurfum að vera aðeins stærri“ „Þá verðum við á góðum stað“ „Þú varst ekki frekari en ég, það er aldrei að fara að gerast“ „Trúðurinn“ fyrir norðan: „Þessi maður á bara að skammast sín“ Sjáðu Andreu skora tvisvar beint úr horni og systurnar svara „Fannst þeir allt eins geta sleppt því að hafa mig“ Uppgjörið: Víkingur-Breiðablik 2-4 | Rigndi mörkum í Víkinni „Fá svo einhvern trúð hérna klappandi í andlitið á mér, það hjálpaði ekki“ FH - Grindavík/Njarðvík 2-1 | Fyrsti sigur FH kom gegn nýliðunum „Hefði átt að stela þessu í lokin“ „Vestmannaeyjakarakterinn sem skóp þetta“ Þór/KA - Stjarnan 2-2 | Sterk endurkoma hjá norðankonum Valur – ÍBV 2-3 | Nýliðarnir á toppnum með fullt hús stiga „Ekkert grín heldur algjörlega fáránlegt“ Þrumuræða Óskars Hrafns: „Kremja þá eins og fokking skordýr undir sólanum á okkur“ „Svo hringdi kærastan mín og ég er búinn að vera hér síðan“ Uppgjörið: Fram - Þróttur 0-3 | Þróttur áfram á sigurbraut en Fram ennþá án stiga Vildi fara heim: Seldur aftur til Þróttar eftir aðeins fimm mánuði í FH Sjá meira