Bjargvættur á Fáskrúðsfirði: "Ég var að drepast úr hræðslu og örvæntingu.“ 21. febrúar 2013 16:05 Kjartan Reynisson hefur starfað hjá Loðnuvinnslunni í 30 ár.
Það var í febrúar árið 2010 sem löndunarmenn Hoffells á Fáskrúðsfirði voru að landa gulldeplu úr lestum skipsins. Þeir voru langt komnir með verkið þegar kom að síðustu lest skipsins. Einn sjómaður fór ofan í lestina og missti þá meðvitund. Það uppgötvaðist fljótlega og fór þá annar sjómaður á eftir honum niður í lestina. Sá var með súrefnisgrímu fyrir vitum. Þegar hann kom að hinum meðvitundarlausa tók hann af sér grímuna og setti á félaga sinn. Vegna eitrunaráhrifa í lestinni missti hann sjálfur nær samstundis meðvitund. „Ég var vakinn um fjögur um nóttina," segir Kjartan Reynisson útgerðarstjóri hjá Loðnuvinnslunni. Hann hefur starfað í 30 ár hjá fyrirtækinu en síðustu sjö árin sem útgerðarstjóri. Honum var strax tilkynnt hvað hefði gerst og hraðaði sér því niður á höfn til þess að aðstoða við björgunina, sem allt í um 20 starfsmenn Loðnuvinnslunnar og fleiri komu að. „Þeir voru að draga seinni manninn upp þegar ég kom," segir Kjartan þegar hann lýsir aðkomunni. Hann segist strax hafa hafist handa við að endurlífga sjómanninn á meðan hinir reyndu að hnoða lífi í hinn. Báðir sjómennirnir voru meðvitundarlausir og önduðu ekki. Kjartan segir að það hafi hjálpað að hann hafi klárað námskeið í slysavarnaskóla sjómanna nokkrum mánuðum fyrr. Það skipti máli að hans sögn. Spurður hvað hafi farið í gegnum huga Kjartans þegar hann reyndi að endurlífga sjómanninn, svarar hann einfaldlega: „Örvænting. Ég var að drepast úr hræðslu og örvæntingu." Kjartan segir að hann hafi haldið ró sinni allan tímann og verið mjög ákveðinn í að koma manninum í gang aftur. Og það hafðist að lokum. „Þvílík guðsblessun sem það var," bætir Kjartan við. Ástæðan fyrir því að mennirnir misstu meðvitund var rotnun í maga fisksins sem gerði það að verkum að það var algjörlega súrefnislaust ofan í lestinni. Á þessum tíma þekktu sjómenn ekki vel eitrunareinkenni gulldeplunnar, sem virðist rotna hraðar en talið var. Spurður hvort atvikið sitji í honum svarar Kjartan: „Auðvitað. Svona lagað fylgir manni í gröfina." Ástæðan fyrir því að Kjartan segir sögu sína í dag er sú að á morgun verður haldin árleg ráðstefna um forvarnar- og öryggismál fyrirtækja á vegum VÍS og Vinnueftirlitsins. Þar verður fjallað um ábyrgð og skyldur stjórnenda og eigenda fyrirtækja í öryggismálum frá mörgum hliðum undir formerkjunum: Slysalaus framtíð – okkar ábyrgð. Þar mun Kjartan lýsa reynslu sinni auk þess sem Tómas Már Sigurðsson forstjóri Alcoa í Evrópu flytur aðalerindi ráðstefnunnar sem. Ráðstefnan fer fram í húsakynnum VÍS í Ármúla 3, á 5. hæð á milli kl. 13 og 16. Að lokum má bæta við að mennirnir sem misstu meðvitund eru við góða heilsu í dag. Hér má svo lesa og horfa á frétt sem var gerð um málið þegar það kom upp.
Mest lesið Lögregla rannsakar alvarlegt slys í Lágafellslaug Innlent Krefjast bóta verði ekki fallið frá áformum um skólaþorp Innlent Sex vikið úr starfi vegna banatilræðis gegn Trump Erlent Tekur önnur Íslendinga þátt í erfiðustu og lengstu kappreið í heimi Innlent Þriðjungur endurreisnarinnar gæti fallið á Rússa Erlent Draga Dettifoss til Reykjavíkur Innlent Fyrsta rafknúna flugvélin í dönsku innanlandsflugi Erlent Halda áfram að ræða veiðigjöldin Innlent Sleginn í andlitið með hnúajárni Innlent Segir ummæli ráðherra um sig ógeðfelld Innlent Fleiri fréttir Tekjur af laxveiði í Borgarfirði eru vel yfir 50% af tekjum landbúnaðar á svæðinu Krefjast bóta verði ekki fallið frá áformum um skólaþorp Halda áfram að ræða veiðigjöldin Tekur önnur Íslendinga þátt í erfiðustu og lengstu kappreið í heimi Draga Dettifoss til Reykjavíkur Sleginn í andlitið með hnúajárni Lögregla rannsakar alvarlegt slys í Lágafellslaug Þingfundi frestað: Stjórnarandstaðan lagði fram „aðeins mýkri“ tillögu „Það er þarna sem rússneskir kafbátar fara í gegn“ Hélt á lokuðu umslagi Tillögur „ekki afhentar í lokuðu umslagi“ Uppþot og fúkyrði á þinginu og bandarískur kjarnorkukafbátur Jökulhlaupið í rénun Reyna að stilla til friðar í bakherbergjum Alþingis Segir ummæli ráðherra um sig ógeðfelld Fundu tuttugu kíló af grasi eftir húsleit í Hafnarfirði Mennirnir þrír sjáist ekki í myndefni Vara við slysahættu vegna kaldavatnsleysis Vilja herða reglur um frágang rafhlaupahjóla í Reykjavík Segir valkyrjur rangnefni og vill kalla þær skjaldmeyjar Samtal við stjórnarandstöðuna fullreynt Kemur kjarnorkuvetur á eftir kjarnorkuákvæðinu? „Forsætisráðherra veit ekkert hvernig þetta hefur verið!“ „Enginn vafi á að fyrirkomulag Bílastæðasjóðs er löglegt“ Nóróveira líkleg orsök hópsýkingar á Laugarvatni „Það er orrustan um Ísland“ „Alvarleg yfirlýsing frá formanni flokks“ „Þjóðin þarf að fá að vita hvernig þau hafa hagað sér á bak við tjöldin“ Þykir leitt að hafa valdið uppnámi Ávarp forsætisráðherra og kjarnorkukafbátur við Grundartanga Sjá meira