Hildur Sverrisdóttir í borgarstjórn - Jórunn hættir Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 28. september 2013 08:00 Hildur Sverrisdóttir hefur mikla reynslu af borgarmálum og þau Gísli Marteinn hafa verið samstíga í gegnum tíðina.
Hildur Sverrisdóttir varaborgarfulltrúi tekur sæti Gísla Marteins Baldurssonar í borgarstjórn. Þetta staðfesti hún í samtali við Fréttablaðið í gær. „Ég er mjög spennt,“ sagði Hildur. „Ég hef verið í umhverfis- og skipulagsráði með Gísla Marteini þannig að ég tel mig vera mikið inni í þessu máli,“ útskýrir hún og bætir við að þau Gísli hafi jafnan verið sammála um borgarsýnina. Hún segist hlakka til þess að taka sæti hans en að vissulega sé eftirsjá að Gísla Marteini úr borgarmálunum. „Ég geri ráð fyrir því að fyrsti borgarstjórnarfundurinn minn verði á þriðjudaginn.“ Ástæðan fyrir því að Hildur fékk sætið er sú að Jórunn Frímannsdóttir varaborgarfulltrúi ákvað að gefa ekki kost á sér. „Ég get staðfest það að ég ætla ekki að halda áfram,“ sagði hún. „En þetta var ekki auðveld ákvörðun. Ég gaf mig fram til þessara starfa á sínum tíma og finnst ekkert auðvelt að ákveða að hætta því.“ Jórunn segir sérstaka stöðu vera uppi í flokknum og í pólitík almennt. „Almenningur er uppgefinn og pólitíkusar einskis metnir,“ segir Jórunn. „Ég er ekki að segja að það sé ekki ástæða fyrir því en þetta er ekkert sérstaklega spennandi vettvangur akkúrat núna.“ Aðspurð segir Hildur Sverrisdóttir það hafa komið sér á óvart að Jórunn skyldi ekki halda áfram. „Ég gerði ráð fyrir því að hún tæki þetta sæti.“
Mest lesið Leigubíll án verðmerkingar og veitingastaðir í óleyfi Innlent Stal 73 rauðvínsflöskum og rúllaði burt á þríhjóli Erlent Tjald vonarinnar brann til kaldra kola Innlent Skötumessur Ásmundar Friðrikssonar gefa vel af sér Innlent Díselþjófar staðnir að verki: „Þetta er búið að kosta okkur milljónir“ Innlent Merkúr Máni sótti brons á Ólympíuleikunum í líffræði Innlent „Þá er samkeppnishæfnin farin, það segir sig bara sjálft“ Innlent Ísraelsher stöðvaði aðra skútu með vistum Erlent Hvalfjarðargöng opin á ný Innlent Virknin minnkað þó áfram gjósi Innlent Fleiri fréttir Vindmyllur í Garpsdal, Evrópumálin og stefnuleysi í heilbrigðiskerfinu Merkúr Máni sótti brons á Ólympíuleikunum í líffræði Leigubíll án verðmerkingar og veitingastaðir í óleyfi Virknin minnkað þó áfram gjósi Tjald vonarinnar brann til kaldra kola Skötumessur Ásmundar Friðrikssonar gefa vel af sér „Þá er samkeppnishæfnin farin, það segir sig bara sjálft“ Líkamsárás í farþegaskipi „Kaldar kveðjur frá ESB“ og tilfinningaþrungin stund á Druslugöngu Hvalfjarðargöng opin á ný „Það er verið að taka aðeins of mikið“ Díselþjófar staðnir að verki: „Þetta er búið að kosta okkur milljónir“ „Ég held að það sé nú best að anda rólega“ Áhugi ungra stráka á Druslugöngunni kom skemmtilega á óvart Mögulegir Evróputollar á íslenskar vörur, lundastofn í rénun og Druslugangan Komst ekki heim frá Íran fyrr en mánuði eftir árásirnar Segir eðlilegast að strandveiðiheimildir verði fyrir utan alla potta Reyndist fjölmennt matarboð „þar sem gleðin var við völd“ Skógasafn vill Gunnfaxa en beðið svara eigenda Áfram gýs úr einum gíg „Það nægir ekki ESB að rústa eigin iðnaðarframleiðslu“ Vill bjóða borgarstjóra í vöfflukaffi eftir deilurnar Ósammála Náttúrufræðistofnun og segja veiðar á lunda forsvaranlegar Eldri borgarar í Vogum leiddu knattspyrnumenn inn á völlinn ESB leggur til tolla á Ísland: „Þetta er bara tillaga sem er á borðinu“ Uppsagnir sjómanna í Grindavík: „Hvenær er nóg, nóg?“ Vilja innlima Vesturbakkann og deilu um göngustíg lýkur með vöfflum Handtekinn vegna ólöglegs vopnaburðar Bilun í flugstjórn olli um tveggja tíma seinkun Mikið viðbragð vegna umferðarslyss Sjá meira