Þórir: Stefnan að komast til Kölnar Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 25. febrúar 2013 07:00 Þórir Ólafsson fagnar hér einu marka sinna á HM í Spáni í janúar. Nordic Photos / Getty Images
Vive Targi Kielce frá Póllandi vann um helgina sinn tíunda sigur í jafnmörgum leikjum í C-riðli Meistaradeildar Evrópu. Liðið var fyrir löngu búið að tryggja sér farseðilinn í 16-liða úrslitin en með sigrinum á slóvenska liðinu Gorenje Velenje á útivelli varð ljóst að Kielce er eina liðið í allri riðlakeppninni sem fór í gegnum alla leikina án þess að tapa stigi. „Við vorum nokkuð öruggir með að vera eitt fjögurra liðanna sem kæmust áfram en við hefðum kannski ekki trúað því hefði einhver sagt okkur fyrirfram að við myndum vinna alla leikina," sagði Þórir sem var markahæstur í leiknum um helgina með sjö mörk. „Það voru kannski erfiðari riðlar í keppninni en okkar en við þurftum að spila á nokkrum erfiðum útivöllum. Við erum gríðarlega ánægðir með árangurinn en nú hefst ný keppni í 16-liða úrslitunum. Við vildum koma okkur í sem bestu stöðu áður en dregið er í næstu umferð og það tókst með því að ná efsta sætinu," bætir hann við. Fjögur lið komast úr riðlunum fjórum í næstu umferð. Dregið verður í 16-liða úrslitin en Kielce getur aðeins fengið lið sem höfnuðu í fjórða sæti síns riðils. Þórir veit þó að það getur allt gerst í útsláttarkeppni. „Það tekur við í raun ný keppni en efsta sætið gefur okkur vissulega meiri möguleika en ella. Markmið okkar er að komast í „Final Four" í Köln og við teljum að það sé raunhæft. Það verður vissulega erfitt en það er allt hægt," segir Þórir en undanúrslitin og svo úrslitaleikurinn fara fram sömu helgina í Köln í Þýskalandi, eins og undanfarin ár.Tveggja turna tal í deildinni Segja má að deildin heima í Póllandi sé tveggja turna tal. Kielce er ríkjandi meistari, bæði í deild og bikar, og eina liðið sem getur velt liðinu af þeim stalli er Wisla Plock. Þessi lið mætast einmitt um næstu helgi í nánast hreinum úrslitaleik um efsta sæti deildarinnar og heimaleikjaréttinn alla úrslitakeppnina. „Wisla vann okkur á sínum heimavelli með sjö marka mun fyrr á tímabilinu og því hefðum við þurft að vinna þá með átta marka mun til að ná efsta sætinu nú. En Wisla var á dögunum dæmt 10-0 tap fyrir að útvega ekki lækna fyrir leik liðsins í deildinni. Liðið hefur reyndar áfrýjað þeim dómi," segir Þórir og bætir við að sínir menn fái ekki mikla mótspyrnu frá öðrum liðum í deildinni. „Það er oft óþægilega mikill munur á liðunum og leikirnir eru oft fljótir að klárast. Það er svo átta liða úrslitakeppni í vor en fyrirkomulagið er umdeilt og umræðan um það ekki ósvipuð þeirri sem var á Íslandi lengi vel. Mikilvægi deildarinnar hefur fengið að líða fyrir það," segir Þórir sem hefur verið í stóru hlutverki að undanförnu þar sem hinn hægri hornamaðurinn, Ivan Cupic, er meiddur. „Við erum reyndar aðeins tveir örvhentir leikmenn í liðinu núna sem eru heilir og það má því lítið út af bera. Ég kom aftur eftir HM á Spáni með smá meiðsli og missti af tveimur leikjum í deildinni sem kom ekki að sök. Þetta hefur gengið upp hingað til," segir hann.Strákarnir í pólskum skólum Þórir er nú á sínu öðru ári í Póllandi og líður vel. Hann er með fjölskyldu með sér, konu og tvo syni. „Sá eldri er á áttunda ári og byrjaður í skóla þar sem hann talar pólsku. Það gengur mjög vel. Svo er sá yngri, sem er eins og hálfs árs, byrjaður í leikskóla og þarf núna að læra inn á allt þar," segir Þórir en um 200 þúsund manns eiga heima í Kielce. „Við vorum búin að kynna okkur málin vel áður en við tókum þá ákvörðun að koma hingað og óhætt að segja að okkur líði vel hér."
Handbolti Mest lesið Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Íslenski boltinn Æfði með rúgbíliði í Frakklandi á undirbúningstímabilinu Körfubolti „Hefðum tapað ef Hákon væri ekki í markinu“ Fótbolti Einkunnir Íslands: Takmörkuð gæði í Tallinn Fótbolti Uppgjörið: Eistland - Ísland 0-0 | Markalaust en strákarnir á toppnum Fótbolti Ronaldo segir þjálfarann hafa svikið sig Fótbolti Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Fótbolti KR vann erkifjendurna sannfærandi Körfubolti Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Kannast ekki við krísufund á Hlíðarenda Danir fjalla um niðurlæginguna á Hlíðarenda „Held að fólk átti sig ekki á því sem við vorum að gera í kvöld“ Sjá meira