Ólögráðahelgi ádeila á unglingadrykkju Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 11. ágúst 2013 19:26 Að sögn rekstrarstjóra Glaumbars verður öryggisgæslan hert á Ólögráðahelginni. samsett mynd „
Þarna er svolítið verið að gera grín að því hvað er mikið af unglingum fullir niðri í bæ á menningarnótt,“ segir Bjarki Reyr, rekstrarstjóri skemmtistaðarins Glaumbars um Ólögráðahelgina svokölluðu, sem fram fer 22. - 24. ágúst. Samkvæmt upplýsingum af veggspjaldi verða viðburðir Ólögráðahelginnar „Barnabjóra Beer Pong“, „Snuddupartý“ og „Smápíkupartí“, en að sögn Bjarka er tilgangurinn sá að skapa umtal um þá menningu sem hefur skapast í miðbænum á menningarnótt. „Það hefur verið svolítið um það að unglingar fái að vera lengi niðri í bæ á menningarnótt. Þeir eru oft mjög fullir og að reyna að komast inn á skemmtistaðina. Það er auðvitað ólöglegt og ekki rétt og það á að taka á þessu. En þetta er látið viðgangast samt sem áður og það er í raun verið að leika sér svolítið með það.“ Bjarki segir að á öllum auglýsingum standi stjörnumerkt neðst að það sé 20 ára aldurstakmark inn á staðinn og að öryggisgæslan verði hert til muna þessa helgi. En telja starfsmenn Glaumbars að ádeilan komist til skila? „Þar sem þú ert að hafa samband hingað þá hugsa ég að hún sé alveg að gera það,“ segir Bjarki og bætir því við að mikil gæsla verði á staðnum og enginn undir aldri fái að neyta áfengra veitinga inni á staðnum. „Ég sá á Facebook-síðu Glaumbars að það hefur verið send inn ein fyrirspurn, af þúsundum sem skoða síðuna, þar sem spurt er hvort þetta sé löglegt. Þetta er auðvitað bara nafn og verið að leika sér að orðum. Það er ekkert ólöglegt við það og við erum ekki að bjóða fólki undir aldri að koma hingað.“
Mest lesið Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Erlent „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Innlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Fleiri fréttir Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Sjá meira