Króatar skulda okkur sæti á HM Jakob Bjarnar skrifar 22. október 2013 12:04 Hrafn Jökulsson rifjar upp að Íslendingar urðu fyrstir til að viðurkenna sjálfstæði Króatíu og nú er komið að skuldadögum.
Hrafn Jökulsson rithöfundur og fyrrum stríðsfréttaritari í Króatíu, sem er sérfróður um sögu og stöðu mála á Balkanskaga, bendir á að Íslendingar hafi verið fyrstir til að viðurkenna sjálfstæði Króatíu og nú sé komið að skuldadögum. En, eins og lýðum má ljóst vera drógust Íslendingar gegn Króötum í umspili um sæti á HM í knattspyrnu, í gær. „Nú er líklega rétti tíminn til að rifja upp að Ísland var fyrsta ríkið í heiminum til viðurkenna fullveldi og sjálfstæði Króatíu. Það var í desember 1991, og Króatar voru að tapa á öllum vígstöðvum fyrir hernaðarmaskínu Serba,“ bendir Hrafn á heldur svo áfram: „Flest ríki ESB sigldu svo í kjölfar okkar og fáeinum vikum síðar var stríðinu í Króatíu lokið. Mér finnst sæti á HM vera sjálfsagður þakklætisvottur!“ Hrafn segir svo skemmtilega hafa viljað til að hann var staddur í Zagreb 18. desember 1991. Og sendi fréttir úr stríðinu á Balkanskaga heim. „Það var aldrei barist í Zagreb en að kvöldi 18. desember byrjaði skyndilega hávær vélbyssuskothríð fyrir utan hótelgluggann hjá mér, ég rauk í símann og ætlaði að láta fréttastofu RÚV vita að innrás væri hafin í höfuðborg Króatíu. En þá voru þetta hamslaus gleðilæti Króata sem höfðu frétt af því einstæða frumkvæði Íslendinga að verða fyrstir þjóða í heiminum til að viðurkenna fullveldi og sjálfsstæði Króatíu. Eftir þetta þurfti ég hvorki að borga mat né drykk á veitingahúsum og var hvarvetna tekið sem þjóðhetju og Íslendingar höfðu á svipstundu eignast stóran stað í hjörtum Króata sem voru á þessum tíma að tapa þessu stríði, enda áttu þeir í höggi við gríðarlega hernaðarmaskínu Belgradstjórnarinnar, sem þá átti yfir að ráða einum öflugasta her Evrópu.“ Hrafn segir að ekkert af Evrópsku stórveldunum hafði þorað að stíga þetta skref. En í kjölfar viðurkenningar Íslendinga streymdu yfirlýsingar frá Þýskalandi og öðrum Evrópulöndum um fullveldi Króatíu, og reyndar einnig Slóveníu. „Þetta gjörbreytti stöðunni í borgarastríðinu á Balkanskaga og örfáum vikum síðar var stríðinu í Króatíu lokið þó harmleikurinn á Balkanskaga teygði sig síðar til Bosníu og víðar. Króatar muna þetta vel og rifja þetta upp við hvert tækifæri sem ég hitti einhvern frá þessari skemmtilegu og ótrúlegu íþróttaþjóð.“ Þá er bara spurt hvort íslensk stjórnvöld þurfi ekki að undirstrika þetta? Hrafn veltir því fyrir sér hvort ekki sé rétt að „okkar ágæti utanríkisráðherra sendir ekki kollega sínum dálitla upprifjun á þessum atburðum, nema íþróttamálaráðherrann okkar gangi beint í málið?“
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Innlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Fleiri fréttir Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Sjá meira