Innlent

Króatar skulda okkur sæti á HM

Jakob Bjarnar skrifar
Hrafn Jökulsson rifjar upp að Íslendingar urðu fyrstir til að viðurkenna sjálfstæði Króatíu og nú er komið að skuldadögum.
Hrafn Jökulsson rifjar upp að Íslendingar urðu fyrstir til að viðurkenna sjálfstæði Króatíu og nú er komið að skuldadögum.
Hrafn Jökulsson rithöfundur og fyrrum stríðsfréttaritari í Króatíu, sem er sérfróður um sögu og stöðu mála á Balkanskaga, bendir á að Íslendingar hafi verið fyrstir til að viðurkenna sjálfstæði Króatíu og nú sé komið að skuldadögum. En, eins og lýðum má ljóst vera drógust Íslendingar gegn Króötum í umspili um sæti á HM í knattspyrnu, í gær.

„Nú er líklega rétti tíminn til að rifja upp að Ísland var fyrsta ríkið í heiminum til viðurkenna fullveldi og sjálfstæði Króatíu. Það var í desember 1991, og Króatar voru að tapa á öllum vígstöðvum fyrir hernaðarmaskínu Serba,“ bendir Hrafn á heldur svo áfram: „Flest ríki ESB sigldu svo í kjölfar okkar og fáeinum vikum síðar var stríðinu í Króatíu lokið. Mér finnst sæti á HM vera sjálfsagður þakklætisvottur!“

Hrafn segir svo skemmtilega hafa viljað til að hann var staddur í Zagreb 18. desember 1991. Og sendi fréttir úr stríðinu á Balkanskaga heim. „Það var aldrei barist í Zagreb en að kvöldi 18. desember byrjaði skyndilega hávær vélbyssuskothríð fyrir utan hótelgluggann hjá mér, ég rauk í símann og ætlaði að láta fréttastofu RÚV vita að innrás væri hafin í höfuðborg Króatíu. En þá voru þetta hamslaus gleðilæti Króata sem höfðu frétt af því einstæða frumkvæði Íslendinga að verða fyrstir þjóða í heiminum til að viðurkenna fullveldi og sjálfsstæði Króatíu. Eftir þetta þurfti ég hvorki að borga mat né drykk á veitingahúsum og var hvarvetna tekið sem þjóðhetju og Íslendingar höfðu á svipstundu eignast stóran stað í hjörtum Króata sem voru á þessum tíma að tapa þessu stríði, enda áttu þeir í höggi við gríðarlega hernaðarmaskínu Belgradstjórnarinnar, sem þá átti yfir að ráða einum öflugasta her Evrópu.“

Hrafn segir að ekkert af Evrópsku stórveldunum hafði þorað að stíga þetta skref. En í kjölfar viðurkenningar Íslendinga streymdu yfirlýsingar frá Þýskalandi og öðrum Evrópulöndum um fullveldi Króatíu, og reyndar einnig Slóveníu. „Þetta gjörbreytti stöðunni í borgarastríðinu á Balkanskaga og örfáum vikum síðar var stríðinu í Króatíu lokið þó harmleikurinn á Balkanskaga teygði sig síðar til Bosníu og víðar. Króatar muna þetta vel og rifja þetta upp við hvert tækifæri sem ég hitti einhvern frá þessari skemmtilegu og ótrúlegu íþróttaþjóð.“

Þá er bara spurt hvort íslensk stjórnvöld þurfi ekki að undirstrika þetta? Hrafn veltir því fyrir sér hvort ekki sé rétt að „okkar ágæti utanríkisráðherra sendir ekki kollega sínum dálitla upprifjun á þessum atburðum, nema íþróttamálaráðherrann okkar gangi beint í málið?“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×