Arftaki Þorvalds kynntur eftir hádegi Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 3. júní 2013 09:55 Mynd/Stefán
Ríkharður Daðason fylgdist grannt með gangi mála þegar Fram lagði Val að velli 2-1 í Borgunarbikar karla síðastliðinn fimmtudag. Þorvaldur Örlygsson sagði upp störfum hjá Fram í gærkvöldi eftir tæp sex ár í starfi. Brynjar Jóhannesson, framkvæmdastjóri Fram, sagði í samtali við Vísi í gær að reynt yrði að ganga frá ráðningu á nýjum þjálfara í dag. Ríkharður var í stúkunni á Hlíðarenda og fylgdist með Frömurum. Sat kappinn útaf fyrir sig og virtist skrifa hjá sér punkta. Þá var Ríkharður einnig á meðal áhorfenda á viðureign FH og Keflavíkur kvöldið áður en Fram mætir Keflavík í 6. umferð Pepsi-deildar karla. Brynjar Jóhannsson, framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar hjá Fram sagði í samtali við Vísi í dag að menn væru að lesa of mikið í nærveru Ríkharðs á umræddum leikjum. Félagið hefði ekki hafið viðræður við neina þjálfara á þeim tímapunkti. Hann var þó ekki tilbúinn að slá nafn Ríkharðs útaf borðinu. „Ekkert frekar en annarra," sagði Brynjar. Hann sagðist reikna með því að geta tilkynnt um eftirmann Þorvalds upp úr hádegi. Ríkharður mætti á æfingar hjá Fram sumarið 2011 og aðstoðaði við þjálfun framherja liðsins. Þá var Ríkharður að vinna í þjálfunargráðu sinni. Hann er Framari í húð og hár, var Íslandsmeistari með liðinu 1990 og gegndi formennsku hjá hlutafélaginu Fram fótboltafélagi Reykjavíkur á sínum tíma. Ríharður var einmitt formaður þess þegar Þorvaldur var ráðinn sem þjálfari liðsins haustið 2007.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Segir félagið í skítnum Enski boltinn Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Fyrstur síðan David Robinson var og hét Körfubolti Fleiri fréttir Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Sjá meira