Ólafur Arnarson segir stefnuna bjánalega 2. apríl 2012 12:10 Ólafur Arnarson.
Ólafur Arnarson segir meiðyrðastefnu Friðriks J. Arngrímssonar, framkvæmdastjóra LÍÚ, á hendur sér bjánalega. Hann treystir því að dómstólar láti ekki frekju og fantaskap verða til þess að venjulegt fólk, eins og hann, verði fyrir stóru fjárhagstjóni. Friðrik stefnir Ólafi fyrir meiðyrði í kjölfar skrifa sem birt voru á vefmiðlinum Pressunni, í júlí 2010 og í júlí 2011. Friðrik telur að sér vegið í pistlaskrifum Ólafs, en í þeim var haldið fram að LÍÚ, fyrir tilstilli og undir stjórn Friðriks, styddi vefmiðilinn AMX til nafnlausra níðskrifa með dulbúnum fjárframlögum sem næmu tuttugu milljónum á ári. Ólafur gefur ekki mikið fyrir stefnu Friðriks. „Mér finnst hún dálítið bjánaleg, satt best að segja. Átta mig ekki alveg á því af hverju hann er að fara í meiðyrðamál." Í kjölfar bréfs sem Ólafi barst frá Friðriki, þar sem sá síðarnefndi hótar málsókn á hendur Ólafi, dragi hann ekki ummæli sín til baka, fjarlægi þau af vefnum og biðjist afsökunar á skrifunum segist Ólafur hafa beðið Friðrik afsökunar á því að hafa mögulega valdið honum hugarangri með sínum skrifum. Hvað hafðirðu fyrir þér þegar þú spyrtir honum við AMX? „Ég hafði heyrt af þessu eftir mjög áreiðanlegum heimildum, allnokkru áður en ég skrifaði þetta í pistilinn." Friðrik krefur Ólaf um eina milljón króna í miskabætur og auk þess um 1,6 milljónir til að standa straum af kostnaði við að birta dóminn í fjölmiðlum. „Ég ber fullt traust til dómstóla að þeir láti ekki svona frekju og fantaskap í mönnum úti í bæ verða til þess að venjulegt fólk, eins og ég, verði fyrir stóru fjárhagstjóni."
Mest lesið Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Seðlabankinn lagði Þorstein Má Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Innlent Fleiri fréttir Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fætinum Kveður Víetnam og heldur áfram til Kína Seðlabankinn lagði Þorstein Má Fólk upplifi óttastjórnun hjá Reykjavíkurborg Geta nú lokað Reykjanesbrautinni með fjarstýringu Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Ungmenni gripin við innbrot „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Sjá meira