Humperdinck: "Held huga mínum hreinum fyrir keppni" 5. maí 2012 20:00
Hjartaknúsarinn Engelbert Humperdinck sem keppir fyrir Bretlands hönd í Eurovision þetta árið veit ekki hvort að Jónsi og Greta Salóme séu sterkir keppinautar - hann kýs frekar að einbeita sér að sínum eigin flutningi. Hinn 75 ára gamli Engelbert Humperdinck hefur brætt mörg kvennahjörtu í gegnum tíðina með ástarsöngvum og hver veit nema flutningur hans á laginu Love Willl Set you Free í Eurovision þetta árið eigi eftir að fá einhverjar til að kikkna í hnjánum. „Ég vona að Íslendingar verði hrifnir af því sem ég geri því í því er mikil dýpt og miklar tilfinningar og ég vona að þeir finni það þegar ég kem fram á sviðinu," segir Humperdinck. Bretar eru hrifnir af framlagi sínu í ár en lag Humperdincks fór beint á topp vinsældarlista Amazon. „Ég held að lagið höfði til fjöldans því á tónleikaferðalagi mínu í Bandaríkjunum hef ég flutt lagið og í hvert skipti hefur því verið tekið fagnandi." En telur þessi gamli jaxl Íslendinga vera keppinauta sína? „Ekki enn. Veistu hvað ég geri? Ég held huga mínum hreinum þangað til í síðustu vikunni og þá ætla ég að spila öll lögin til að sjá við hvað ég er að keppa. En núna vil ég einbeita mér að flutningi mínum og að mínu lagi." Þessi reynslubolti veit upp á hár hvernig hann mun líta út á sviðinu í Bakú og sagði fréttamanni að búa sig undir: „Glæsibrag, elskan mín, glæsibrag." Hægt er að sjá Humperdinck flytja lag sitt hér.
Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Operation Matrix: Fjölmörg burðardýr fluttu inn minnst 100 kíló af kókaíni Fréttir Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Umferðarslys í Bolungarvík Innlent Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara Innlent Fleiri fréttir Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Sjá meira