Innlent

Vélarbilun í 12 tonna hraðfiskibát

Vélarbilun varð í gærkvöldi í 12 tonna yfirbyggðum hraðfiskibáti með þriggja manna áhöfn, þegar hann var staddur undan strönd Öræfasveitarinnar.

Skipstjóri óskaði þegar eftir aðstoð og var björgunarskipið Ingibjörg sent frá Hornafirði og var komið að bátnum laust fyrir miðnætti. Taug var komið á milli og kom Ingibjörg með bátinn í togi til Hafnar í Hornafirði laust fyrir klukkan sex í morgun.

Gott veður var á svæðinu og voru bátsverjar því ekki í hættu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×