Innlent

Hægri grænir vilja stafinn G

Guðmundur Franklín Jónsson
Guðmundur Franklín Jónsson
Flokkur hægri grænna, flokkur fólksins, hefur formlega sótt um listabókstafinn G. Flokkurinn, sem leiddur er af Guðmundi Franklín Jónssyni, skilaði inn meðmælendalistum til Innanríkisráðuneytisins í gær.

Flokkurinn var stofnaður á Þingvöllum 2010 og hyggst bjóða fram til næstu alþingiskosninga. Helstu áherslumál flokksins eru meðal annars beint lýðræði, frjálst, sjálfbært markaðskerfi og alhliða náttúruvernd. - ktg




Fleiri fréttir

Sjá meira


×