Steingrími var boðið að gerast fjármálastjóri Grikklands Þorbjörn Þórðarson skrifar 20. maí 2012 13:16 Steingrímur J. Sigfússon, efnahags- og viðskiptaráðherra og fyrrverandi fjármálaráðherra.
Steingrími J. Sigfússyni, efnahags- og viðskiptaráðherra, var boðið að gerast sérstakur fjármálastjóri á vegum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í Grikklandi í sex mánuði, en neitaði. Steingrímur segist hafa verið beðinn um þetta þegar hann sótti fund hjá sjóðnum í Washington. Steingrímur greindi frá þessu í þættinum Silfri Egils á Rúv fyrr í dag. Steingrímur sagðist hafa verið á göngunum eftir að hafa sótt fund hjá Alþjóðgjaldeyrissjóðnum í Washington þegar hann hafi verið spurður hvort hann væri til í að „taka við" Grikklandi í sex mánuði. Samkvæmt upplýsingum fréttastofunnar fólst starfið í því að vera nokkurs konar æðsti embættismaður fjármála hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum í ríkinu, en Grikkland hefur þegið fjárhagslega aðstoð frá Evrópusambandinu og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum eftir hrunið og er sem stendur að ganga í gegnum sérstaka áætlun í samstarfi við sjóðinn. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem fréttir berast um ánægju æðstu embættismanna AGS með störf Steingríms, því þegar Lee Buchheit, sem var aðal samningamaður Íslands í síðari Icesave-samningunum (Icesave III), kynnti samningana á fundi í Öskju í Háskóla Íslands hinn 10. desember 2010 fékk hann spurningar úr sal um tengsl AGS áætlunar og nýrra samninga. Sagðist Buchheit hafa sótt fund ásamt Steingrími hjá stjórn sjóðsins í Washington og að framganga Steingríms þar og málflutningur hefði ekki síst orðið þess valdandi að stjórn sjóðsins samþykkti endurskoðun á efnahagsáætlun Íslands og þar með áframhaldandi greiðslur til landsins þótt ekki væri búið að semja í Icesave-deilunni. (Sjá hér). Þegar stjórn AGS samþykkti endurskoðaða efnahagsáætlun fyrir Ísland meðan Icesave deilan var óleyst eftir fyrri synjun forsetans þóttu það nokkur tíðindi þar sem lengi vel virtist stjórn sjóðsins gera kröfu um lausn á deilunni þegar endurskoðuð efnahagsáætlun var annars vegar. thorbjorn@stod2.is
Mest lesið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Erlent Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Erlent Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Ofstækisfullar sértrúarskoðanir eru einfaldlega eitur“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sonur þingmannsins ákærður Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ „Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Feginn að verðbólga stendur í stað og meirihluti mótfallinn þátttöku í Eurovision Til Ilulissat á Airbus með nýjum flugvelli Biðin á Landspítalanum styttist til muna Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Rukka erlenda nemendur um milljónir Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Frumvarp kynnt um afnám æviráðningar Bein útsending: Kynnir aðgerðaáætlun gegn fátækt barna Sjá meira