Innlent

Íslendingur í Bologna: "Þetta var eins og stór alda sem fór yfir"

Jóhanna Margrét Gísladóttir. skrifar
Frá Bologna í dag.
Frá Bologna í dag. mynd/AP
Íslensk stúlka sem býr í Bologna á Ítalíu líkir jarðskjálftanum sem reið yfir norðurhérað landsins í nótt við stóra öldu sem fór yfir. Hún segir að allt hafi verið á hreyfingu í hálfa mínútu. Margir litlir eftirskjálftar hafa fundist í dag og eru íbúar í borginni skelkaðir, sumir þora ekki að fara heim til sín.

Að minnsta kosti sex létust í skjálftanum og fjölmargir eru slasaðir. Fjölmargar sögufrægar byggingar skemmdust í skjálftanum en hann er einn sá snarpasti í sögu Ítalíu.

Bryndís Héðinsdóttir er skipinemi ásamt kærasta sínum í Bologna. Hún segist hafa fundið vel fyrir skjálftanum í nótt.

„Þetta var í rauninni eins og stór alda sem fór yfir og það var allt á hreyfingu í hálfa mínútu," segir Bryndís. „Þetta gekk í rauninni fljótt yfir."

Þau ákváðu hins vegar að fara aftur að sofa eftir skjálftann og áttuðu sig því ekki á alvarleika málsins fyrr en þau vöknuðu í morgun og sáu fréttirnar. Hún segir fólk í borginni vera skelkað og fáir séu á ferli.

„Það er ennþá svolítil hræðsla í fólki," segir Bryndís. „Fólk er hvatt til að vera heima og vera tilbúið að fara út ef það koma eftirskjálftar. Það kom eftirskjálfti um þrjúleytið, það eru enn einhverjar hreyfingar hérna."

Hún segir að íbúar séu vanir jarðskjálftum á þessu svæði en tæplega þrjú hundruð manns létust í skjálfta á svipuðu svæði árið 2009

„Eins og vinkona mín. Hún upplifði skjálftann árið 2009 og fór út þegar skjálftinn reið yfir í nótt, hún hefur ekki farið inn síðan. Það er mikil hræðsla í þeim."

Hún segir þau vera óhrædd, enda Íslendingar sem eru vanir jarðskjálftum.

„Ég sagði einmitt við kærastann minn að ég væri hrædd, en hann sagði mér bara að fara aftur að sofa og allt væri í góðu, bara smá jarðskjálfti," segir Bryndís.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×