Íhuga að óska sjálfir eftir umsögn Ríkisendurskoðunar Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 29. september 2012 18:52
Stjórnarandstæðingar gagnrýna harðlega ákvörðun fjárlaganefndar um að fresta því að senda fjáraukalögin til umsagnar hjá Ríkisendurskoðun. Þingmenn Sjálfstæðisflokksins íhuga að óska sjálfir eftir því að stofnunin veiti umsögnina engu að síður. Fjárlaganefnd ákvað á fundi sínum í gær að bíða með það að senda fjáraukalögin til Ríkisendurskoðunar vegna trúnaðarbrests sem ríkir á milli Alþingi og stofnunarinnar. Þingmenn Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins hafa gagnrýnt þessa ákvörðun harðlega. Kristján Þór Júíusson á sæti í fjárlaganefnd fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Hann segir þingmenn Sjálfstæðisflokksins í nefndinni nú skoða það að leita sjálfir eftir því að Ríkisendurskoðun veiti umsögn um fjáraukalögin. „Ég að vísu vona að það þurfi ekki að koma til þess heldur geti þingið staðið saman um að fá álit hlutlauss aðila í þessum efnum og neita satt að segja að trúa því að stjórnarmeirihlutinn á Alþingi þori ekki að bera verk sín undir dóm annarra. Ef að þau eru staðföst í því þá að sjálfsögðu munum við leita allra þeirra leiða sem við höfum færar til þess að draga fram hlutlæga gagnrýni á þetta mislukkaða verk stjórnarmeirihlutans," segir Kristján Þór. Björn Valur Gíslason formaður fjárlaganefndar segir einstökum þingmönnum frjálst að senda málið til Ríkisendurskoðunar. „Þeir geta sent mál til hverra þeirra sem þeir treysta til að fjalla um fjáraukalagafrumvarpið rétt eins og önnur mál sem að berast til nefnda þingsins, ég geri enga athugasemd við það. Þeim er bara frjálst að gera það," segir Björn Valur. Þá segir hann að hægt sé að klára afgreiðslu fjáraukalaganna án þess að umsögn berist frá Ríkisendurskoðun. „Það er ekkert því til fyrirstöðu að þannig verði. Okkur ber engin skylda til þess." Kristján segir mikilvægt fyrir Alþingi að fá hlutlæga umsögn um frumvarpið. „Miðað við vinnulagið þá virðast þeir líta á sig sem alvalda í íslensku þjóðfélagi og það væri eftir öðru að þeir teldu sig ekki þurfa að bera nokkurn skapaðan hlut undir almenning eða lögskipaðar stofnanir."
Mest lesið Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Innlent „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Gular viðvaranir og allt að tuttugu og sjö stig Veður Tveir látnir eftir að tveir hófu skothríð Erlent Lindsey Graham er látinn Erlent Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Innlent „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Innlent Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Innlent Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Innlent Íran og Bandaríkin skiptast á árásum Erlent Fleiri fréttir „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Sjá meira