Innlent

Engin ákvörðun tekin um áfrýjun

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði Einar Marteinsson af ákærunni.
Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði Einar Marteinsson af ákærunni.
Ríkissaksóknari hefur ekki tekið ákvörðun um það hvort málinu gegn Einari „Boom" Marteinssyni og félögum hans verður áfrýjað. Einar var sýknaður af ákæru um aðild að líkamsárás í Hafnarfirði skömmu fyrir síðustu jól, en dómur var kveðinn upp í málinu fyrr í vikunni. Fjórir fengu þunga dóma vegna árásarinnar. Þyngsta dóminn fékk Andrea Unnarsdóttir, eða fjögurra og hálfs árs fangelsi. Auk Einars var einn annar sýknaður af aðild að málinu. Saksóknari hefur fjögurra vikna frest til að áfrýja.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×