Innlent

Ræddu viðbrögð Íslendinga í Icesave-málinu

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Árni Páll Árnason er varaformaður utanríkismálanefndar Alþingis.
Árni Páll Árnason er varaformaður utanríkismálanefndar Alþingis.
Viðbrögð Íslendinga við meðalgöngu framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins í Icesave-málinu var rædd á fundi utanríkismálanefndar Alþingis í morgun.

Hópur íslenskra lögfræðinga sem vinnur að málflutningi fyrir Íslands hönd mætti því á fundinn til að upplýsa nefndarmenn. Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur þegar skilað greinargerð til EFTA dómstólsins, þar sem tekið er undir sjónarmið ESA, eftirlitsstofnunar EFTA, í málflutningnum gegn Íslandi.

Leynd ríkir yfir viðbrögðum íslenska lögfræðiteymisins, en samkvæmt upplýsingum frá Árna Páli Árnasyni, varaformanni nefndarinnar, má búast við því að þau verði gerð opinber í næstu viku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×