Samningaviðræður: Vilja möguleika á að neita erlendum meiðyrðadómum 11. júní 2012 17:35
Samningsafstaða Íslands varðandi fjármálaþjónustu annars vegar og dóms- og innanríkismál hins vegar í samningaviðræðum Íslands og ESB hefur verið birt á heimasíðunni viðræður.is samkvæmt tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu. Hún var send framkvæmdastjórn ESB og aðildarríkjunum eftir að um hana hafði verið fjallað í viðkomandi samningahópum, samninganefnd Íslands og utanríkismálanefnd Alþingis, og hún samþykkt í ráðherranefnd og ríkisstjórn. Búist er við því að viðræður hefjist í viðkomandi málaflokkum síðar á þessu ári. Í samningsafstöðu Íslands í kafla 9 um frjálsa vöruflutninga kemur fram að kaflinn falli að öllu leyti undir EES-samninginn. Í samningsafstöðunni lýsir Ísland þeim endurbótum á innlendri löggjöf, stjórnsýslu og eftirliti með fjármálaþjónustu sem gerðar hafa verið í kjölfar efnahagshrunsins og leggur áherslu á að allir aðilar máls virði væntanlega niðurstöðu EFTA dómstólsins um framkvæmd tilskipunarinnar um innstæðutryggingar. Ísland óskar eftir því að Viðlagatrygging Íslands sem veitir tryggingu vegna tjóns að völdum náttúruhamfara verði undanþegin ákvæðum tilskipunar um stofnun og rekstur fyrirtækja á sviði vátrygginga og endurtrygginga. Kafli 24, um dóms- og innanríkismál, heyrir ekki undir EES-samninginn en undir þennan kafla fellur m.a. Schengen samstarfið, sem Ísland hefur verið aðili að frá 2001. Þau efni sem kaflinn nær til eru m.a. innflytjenda- og hælismál, mál sem varða landamæri og Schengen, dómstólasamstarf í einka- og sakamálum, lögreglusamvinna, barátta gegn hryðjuverkum og ávana- og fíkniefnum. Í samningsafstöðu Íslands kemur fram að regluverkið um dóms- og innanríkismál er að miklu leyti byggt á alþjóðlegum skuldbindingum sem Ísland er þegar aðili að og beitir því nú þegar. Er þar meðal annars um að ræða aðild að Lúganó-samningnum og nokkrum Haag-samningum á sviði alþjóðlegs einkamálaréttar, nokkra samninga Sameinuðu þjóðanna og samninga Evrópuráðsins auk samninga sem Ísland hefur gert um aðild að ýmsum stofnunum ESB á þessu sviði. Í samningsafstöðunni leggur Ísland til viðbót við reglugerð ESB um fullnustu óumdeildra krafna sem gerði Íslandi kleift að neita að viðurkenna dóm í meiðyrðamáli ef um er að ræða svokallað meiðyrðamálaflakk sem hafi mikinn málvarnarkostnað í för með sér. Samningaviðræðurnar um aðild Íslands að Evrópusambandinu snúast um 33 kafla í regluverki ESB, auk kafla um stofnanir og annað. Alls hafa 15 samningskaflar verið opnaðir frá því að efnislegar aðildarviðræður hófust í júní á síðasta ári og er samningum þegar lokið um 10 þeirra. Alls hefur samningsafstaða Íslands í 22 köflum verið birt á viðræður.is.
Mest lesið Fjölskyldufaðir þungt haldinn á spítala eftir alvarlega árás á þorrablóti Innlent „Þarf maður að fara að finna einhverja nýja fjöru?“ Innlent „Skaðinn er ekki skeður þó að járnbrautarslysið vofi yfir“ Innlent Rektor Háskólans á Bifröst segir af sér Innlent Drífa Snædal snýr aftur Innlent Ný Ölfusárbrú farin að taka á sig mynd Innlent Tók hálftíma að þróa fullkomna eftirlíkingu af rödd Höllu Innlent Gabríel á bak við lás og slá fram á föstudag Innlent Goddur jarðsunginn Innlent „Það er ekkert sem tekur við og enginn sem ber ábyrgð“ Innlent Fleiri fréttir „Þarf maður að fara að finna einhverja nýja fjöru?“ „Skaðinn er ekki skeður þó að járnbrautarslysið vofi yfir“ Fjölskyldufaðir þungt haldinn á spítala eftir alvarlega árás á þorrablóti Tók hálftíma að þróa fullkomna eftirlíkingu af rödd Höllu Rektor Háskólans á Bifröst segir af sér Ný Ölfusárbrú farin að taka á sig mynd „Það er ekkert sem tekur við og enginn sem ber ábyrgð“ Drífa Snædal snýr aftur Goddur jarðsunginn Tifandi tímasprengja, oddviti í beinni og breytt Reynisfjara Handtekin fyrir að beita opinberan starfsmann ofbeldi „Þörfin er gríðarleg“ Gabríel á bak við lás og slá fram á föstudag Blíðan haft áhrif á gróður sem lætur þó ekki plata sig Reiknar með einu gosi í viðbót Flutti til Reykjavíkur í dag Málið mögulega fyrir dómstóla: „Ekkert eðlilegt við það að fá símtal frá stjórnendum“ Réttað yfir manni sem er grunaður um að nauðga barni og konu sinni Saka stjórnendur Bifrastar um að hafa beitt nemendur þrýstingi Saka stjórnendur um að þrýsta á nemendur að styðja rektor Biðla enn til almennings sjö árum eftir hvarf Jóns Þrastar Þorsteinn fær áheyrn Hæstaréttar Ari Edwald leiðir Miðflokkinn í borginni Stjórnarformaðurinn verður forstjóri Reykjalundar Íslenska ríkið ræður lobbýista í Washington Jarðskjálftahrinan við Eldey heldur áfram Þetta eru launin sem frambjóðendur geta vænst með kjöri í vor „Vísun máls til siðanefndar getur ekki talist aðför“ Fjórir handteknir í tengslum við líkamsárásir „Stuðlabergið er bara komið út í sjó“ Sjá meira