Telja óvíst um vatnsstöðu vegna leigutanks 20. desember 2012 06:00 Perlan Borgin leigir einn af sex hitaveitutönkum í Öskjuhlíð samfara kaupum á Perlunni.Fréttablaðið/Vilhelm
Fulltrúar minnihluta Sjálfstæðisflokks og Vinstri grænna í borgarstjórn Reykjavíkur eru andvígir því að borgin taki á leigu einn hitaveitutanka Orkuveitunnar í Öskjuhlið samfara kaupum borgarinnar á Perlunni. Í bókun borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins er vísað til þess að mikilvæg gögn, sem lögð hafi verið fyrir stjórnarfund Orkuveitunnar fyrir viku og varði afhendingaröryggi hitaveitunnar í vesturhluta borgarinnar, hafi hvorki verið kynnt í borgarráði né borgarstjórn. Fresta ætti ákvörðun um viðskiptin. Sóley Tómasdóttir, borgarfulltrúi Vinstri grænna, sagði að vanda þyrfti undirbúning til að tryggja hagsmuni borgarbúa og afhendingaröryggi heits vatns á næstu tíu árum. „Það sætir furðu að borgarfulltrúar meirihlutans taki svo illa ígrundaða ákvörðun sem vekur upp spurningar um það hvort rannsóknarskyldu upplýsingalaga sé fullnægt,“ bókaði Sóley. Borgarfulltrúar meirihluta Besta flokksins og Samfylkingarinnar svöruðu að endanlegir samningar yrði lagðir fram í borgarráði. Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks, segir að stjórnarmönnum í OR hafi á fundi fyrir viku verið sýnt í trúnaði minnisblað með upplýsingum um að með tilliti til afhendingaröryggis heits vatns væri óábyrgt að fyrirtækið leigði út tankinn. Minnisblað forstjóra OR frá 18. desember fæli í sér aðra niðurstöðu. - gar
Mest lesið Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Innlent Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Innlent Hafði komið sér í fyrir á háalofti hótels Innlent Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Innlent Þau kvöddu á árinu 2025 Erlent Fyrirskipaði árásir á „hryðjuverkaúrhrök“ í Nígeríu Erlent Töpuðu tæpum hundrað milljónum Innlent Kuldaskil á leið yfir landið Veður Komst ekki á toppinn og bótakröfunni hafnað Neytendur Fyrstu þreifingar áramótaveðurspár Veður Fleiri fréttir Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Hafði komið sér í fyrir á háalofti hótels Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Umferðin róleg í kirkjugörðunum Töpuðu tæpum hundrað milljónum Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Þörf á að skerpa á verklagi spítalans í heimilisofbeldismálum Engin jólamessa vegna rafmagnsleysis Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Skiluðu hagnaði á kosningaári Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Björgunarsveitin kölluð út í fokverkefni Grjóthrun undir Eyjafjöllum Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Arion banki varar við svikaherferð Innanlandsflugi aflýst Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Hvar er opið á aðfangadag? Innflytjendamálin almenningi efst í huga Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Hafnar „jólakveðju“ ríkisins Hefði þurft hjólbörur undir öll verðlaunin sín Ýmis ráð til taugatrekktra á Þorláksmessu Ekkert því til fyrirstöðu að Ásthildur Lóa verði aftur ráðherra Sjá meira