Fjölmiðlar úr takti ali ekki á misklíðinni gar@frettabladid.is skrifar 19. desember 2012 07:30 María Thejll, forstöðumaður lagastofnunar Háskóla Íslands, Þórólfur Matthíasson, prófessor í hagfræði við HÍ, og Þórir Ólafsson endurskoðandi sitja í eftirlitsnefndinni.
Mikilvægt er að fjölmiðlar ali ekki á misklíð, segir eftirlitsnefnd Alþingis um aðgerðir í þágu einstaklinga, heimila og fyrirtækja vegna banka- og gjaldeyrishrunsins. Eftirlitsnefndin segir í fjórðu áfangaskýrslu sinni fjármálafyrirtæki í meginatriðum hafa fylgt lögum og jafnræðis verið gætt við fjárhagslega endurskipulagningu 650 minni og meðalstórra fyrirtækja með skuldir undir einum milljarði króna. Sérstaklega er vikið að umfjöllun fjölmiðla um skuldamál einstaklinga og fyrirtækja. Nefndin hafi skoðað öll slík mál sem snerta eftirlitssvið hennar „Hefur niðurstaðan alla jafna verið á þann veg að vinnsla þeirra sé innan þeirra viðmiða sem unnið skyldi eftir. Umfjöllun um þau hefur því hvorki verið í takt við efni máls né byggð á öllum staðreyndum sem máli skipta,“ segir eftirlitsnefndin. „Um er að ræða málefni sem sæta bankaleynd og því geta fjármálafyrirtækin ekki fjallað um þau opinberlega og verða að sitja þegjandi undir fréttaflutningi, hvort sem hann er réttur eða rangur. Upp hafa komið tilvik þar sem fjármálafyrirtæki hafa óskað eftir því við viðskiptamann að leynd yrði aflétt í máli hans þannig að skýra megi mál en án þess að það hafi verið samþykkt.“ Þá segir nefndin mikilvægt að fjölmiðlar sem fjalla um mál sem tengjast fjárhagslegri endurskipulagningu kynni sér málin „af kostgæfni og með upplýsingu almennings og almannahagsmuni að leiðarljósi“. Það megi meðal annars gera með því að viðmælendur verði beðnir um rökstuðning og gögn staðhæfingum sínum til stuðnings. „Mikil ábyrgð hvílir á fréttamiðlum sem flytja fréttir um að þær verði ekki til þess að villa um fyrir viðtakendum eða ali á óánægju og misklíð,“ undirstrikar nefndin. Engin dæmi eru tiltekin í skýrslu eftirlitsnefndarinnar um ranga umfjöllun fjölmiðla. María Thejll, formaður nefndarinnar, skýrir það með því að nefndin sé háð bankaleynd. „Við getum sagt að þetta sé meira og minna í umfjöllun fjölmiðla því þeir eru ekki með allar upplýsingar í málunum. Fjölmiðlar þurfa að setja sig inn í út á hvað lög og reglur ganga og fá síðan bæði einstaklinga og fyrirtæki, sem halda því fram að það sé verið að gera eitthvað annað heldur en samræmist lögum og reglum, til að leggja sitt á borðið áður en það byrjar hér æsifréttamennska út og suður,“ segir María Thejll.
Mest lesið Sjö ára dómur Innlent Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Erlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Innlent Ekki ástæða til að rýma bankann Innlent Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Innlent Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Innlent Fleiri fréttir „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Sjá meira