Mengun skaðar aðallega ímynd 14. desember 2012 09:00 Ytri-Rangá er mikil lindará sem fráveitan á Hellu mengar lítið en er óhöpp verða mislíkar veiðimönnum að sjá úrgang fljótandi niður ána. Fréttablaðið/Garðar
Úrgangur sem lekið hefur í Ytri-Rangá frá kjúklingasláturhúsi á Hellu er fyrst og fremst sjónræn mengun en hefur ekki valdið skaða í lífríkinu. Ofangreint kemur fram í Drögum að stöðuskýrslu fyrir vatnasvæði Íslands. Eins og kunnugt er hafa veiðimenn við Ytri-Rangá einstaka sinnum orðið varir við kjúklingaúrgang fljótandi í ánni. Lax-á, leigutaki árinnar, er einmitt um þessar mundir að krefjast milljóna króna í skaðabætur eftir eitt óhappið sem varð í fyrrasumar. Fyrirtækið segist hafa orðið af miklum tekjum vegna veiðimanna sem þurft hafa frá að hverfa. Í stöðuskýrslunni segir að mælingar í október síðastliðnum hafi sýnt litla saurkólígerlamengun við og neðan við hreinsistöð í fráveitunni á Hellu. „Þessar niðurstöður benda til að viðtakandinn, Ytri-Rangá, sé ekki undir álagi vegna gerla og lífrænna efna úr þéttbýlisfráveitu,“ segir í skýrslunni. Áfram segir að tímabundið en umtalsvert álag hafi orðið í Ytri-Rangá vegna mengunar af völdum fitu og sláturúrgangs frá sláturhúsum þegar fitugildrur yfirfylltust, einkum hjá kjúklingasláturhúsi Reykjagarðs. „Nokkrum sinnum á síðustu árum hefur slíkur úrgangur farið beint í ána út af þessu.“ Þá kemur fram að hreinsibúnaðurinn þarfnist úrbóta. „Þetta eru fyrst og fremst mjög neikvæð sýnileg áhrif sem skaðað geta ímynd þessarar vinsælu veiðiár,“ segir í stöðuskýrslunni sem gerð er af Umhverfisstofnun.- gar
Mest lesið Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Innlent Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Innlent Fækkar lögregluembættum Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Fleiri fréttir Enginn meirihluti í Grindavík Ingimar verður bæjarstjóri í Hveragerði Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Stefán Carlsson er látinn Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Gert ráð fyrir atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður í dag Gular viðvaranir og snjókoma næsta sólarhringinn Enn tekist á um ESB í þingsal og verðbólgan hjaðnar lítið Gylfi verður bæjarstjóri á Ísafirði „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Fækkar lögregluembættum Líta stöðuna í Varmá mjög alvarlegum augum Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Steinum kastað í bifreiðar og rúða brotin í skóla Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Sjá meira