ASÍ og SA ræða um kaupmátt 14. desember 2012 05:00 Gylfi ARnbjörnsson
Forysta ASÍ hefur ekki tekið ákvörðun um uppsögn kjarasamninga í janúar. Þetta segir Gylfi Arnbjörnsson, formaður ASÍ, í samtali við Fréttablaðið. Framhaldið velti á því hvort náist saman með atvinnurekendum um aðgerðir til kaupmáttareflingar. Forvígismenn stjórnarinnar vísa ásökunum ASÍ á bug. ASÍ birti í gær blaðaauglýsingu þar sem stjórnvöld voru sökuð, í átta liðum, um vanefndir á fyrirheitum í tengslum við kjarasamninga. „Það er ljóst af okkar hálfu að um alvarlegan forsendubrest er að ræða gagnvart stjórnvöldum og atvinnurekendum,“ segir Gylfi og segir ekki líklegt til árangurs að eiga frekari samskipti við ríkisstjórnina. „Endurskoðun samninganna mun snúast um kaupmátt okkar félagsmanna og við munum reyna að ná saman með okkar viðsemjendum um það, þar sem verðbólga er niðurstaða ákvarðana fyrirtækja og sveitarfélaga um að hækka verð á vörum og þjónustu.“ Vilmundur Jósefsson, formaður Samtaka atvinnulífsins, segir sjálfsagt að ræða við ASÍ um kaupmáttareflingu með þessum formerkjum. „Það er útilokað að fara út í frekari launahækkanir, en ef hægt er að ná saman um kaupmáttaraukningu með öðrum hætti erum við tilbúin að skoða það.“ Forustumenn stjórnarinnar vísa ásökunum ASÍ á bug og lýsa yfir undrun og vonbrigðum. „Ekkert þeirra átta efnisatriða sem þar eru tíunduð sem vanefndir ríkisstjórnarinnar á við rök að styðjast,“ segir í yfirlýsingu. - þj
Mest lesið Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar Innlent Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Sjö ára dómur Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Erlent Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Innlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent Lentu aftur í óförum Innlent Fleiri fréttir „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Sjá meira