Leikskólabörn í Aðalþingi fá hægan mat á hlaðborði 14. nóvember 2012 07:00 Eftir sumarfrí hófst tilraun með hlaðborð fyrir eldri börnin í Aðalþingi. „Þau velja einfaldlega mat á diskinn sinn og setjast þar sem þau vilja. Þau læra þetta strax,“ segir Sigurður Þór Salvarsson. Fréttablaðið/valli
Rekstrarstjóri leikskólans Aðalþings í Kópavogi segir ekki dýrara að vinna mat frá grunni fyrir börn og starfsfólk en að kaupa aðsendan mat. Faglærður kokkur eldar ofan í mannskapinn sem er afar ánægður. „Við fáum mjög margar fyrirspurnir frá foreldrum sem óska eftir uppskriftum af því börnin eru að biðja um að maturinn heima sé eins og í leikskólanum,“ segir Sigurður Þór Salvarsson, rekstrarstjóri leikskólans Aðalþings í Kópavogi. Leikskólinn í Aðalþingi hefur verið starfræktur frá árinu 2009 og fylgt stefnu sem kennd er við ítölsku borgina Reggio Emilia eins og yfir þrjátíu aðrir skólar hérlendis. Sigurður segir hluta stefnunnar vera svokallaða „slowfood“ matargerð. Hugað sé að því að allt hráefni sé hreint og úr heimabyggð. „Við vinnum allan mat frá grunni í skólanum. Það er ekkert keypt inn af unnum matvörum. Við búum meira að segja til okkar eigin tómatsósu, bökum brauð og kokkurinn okkar hefur verið að prófa sig áfram í ostagerð,“ segir Sigurður sem kveður rekstur mötuneytisins ekki dýrari en í hverjum öðrum skóla. „Við teljum okkur vera að nýta hráefnið betur og fórum líka þá leið að ráða strax fagmenn í eldhúsið hjá okkur. Þótt þeir séu aðeins dýrari þá höldum við kostnaðinum niðri því fagmaður vinnur skipulegar og skilar meiru af sér en ófaglærður maður,“ segir rekstrarstjórinn og upplýsir að matreiðslumaðurinn í Aðalþingi frá því í vor sé kona sem áður var yfirmatreiðslumaður á veitingastaðnum La Primavera. „Þannig að við erum ekki með neinn slorkokk.“ Um 120 börn og þrjátíu starfsmenn eru í Aðalþingi. Sigurður segir að um nokkurra vikna skeið í vor hafi skólinn verið „milli kokka“ og keypt mat frá fyrirtækinu Skólamat. „Við höfum aldrei hent eins miklu af mat eins og þessar vikur. Bæði börn og starfsmenn voru mjög óhress með breytinguna. Mér sjálfum finnst alveg galið að það sé verið að keyra mat frá Keflavík og halda honum heitum í marga klukkutíma til að bera á borð fyrir börn í Kópavogi eins og dæmi eru um,“ segir Sigurður en tekur þó fram að grunnur þess að geta gert góða hluti í matsalnum sé góð aðstaða og góð tæki. Ekki búi allir skólar að því. Börnin fá að fylgjast með matseldinni eins og hægt er. „Það er hluti af þessu öllu saman að börnin viti hvaðan maturinn kemur. Það fer heilmikil kennsla fram í gegnum eldamennskuna,“ segir Sigurður og undirstrikar að maturinn í Aðalþingi sé mun heilsusamlegri en tilbúin matvæli á borð við pylsur, bjúgu og forsteiktar kjötbollur. „Tilbúinn matur er lagaður í stórum maskínum þar sem menn blanda alls kyns rotvarnar- og litarefnum saman við. Slík efni koma ekki hér inn í hús.“gar@frettabladid.is
Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Innlent Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Innlent Bakar til góðs næsta sólarhringinn Innlent Fleiri fréttir Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sjá meira