Helstu neyðarlyf verða alltaf til 10. ágúst 2012 05:15
Unnið er að því á vegum heilbrigðisyfirvalda að tryggja neyðarlyfjabirgðir í landinu. Vinnan er hluti af mótun lyfjastefnu stjórnvalda til ársins 2020. Listi hefur verið útbúinn yfir nokkra tugi lyfja sem aldrei mega klárast, þrátt fyrir að landið lokist vegna neyðarástands. Flestir kannast við þann viðbúnað sem gripið var til árið 2009 vegna svínainflúensu. Þá voru tryggðar birgðir um allt land af nauðsynlegum vökvum og bóluefnum. Þess utan eru ákveðin lyf sem landsmenn geta ekki verið án ef allt lokast. Hefur insúlín verið nefnt sem dæmi. Samkvæmt upplýsingum frá velferðarráðuneytinu er tilurð vinnunnar sú að á undanförnum árum hafa komið upp dæmi sem vöktu menn til umhugsunar; svínaflensan, fuglaflensan og hrunið hafi ýtt undir mikilvægi þess að þessi mál séu öll örugglega í lagi. Birgðahald mikils fjölda lyfja er kostnaðarsamt. Þess vegna hefur verið útbúinn sérstakur lágmarkslisti nauðsynlegra lyfja. Í reglugerð verður kveðið á um hvaða lyf þetta eiga að vera en um tugi lyfja er að ræða en ekki hundruð. Gengið er út frá því að á hverjum tíma séu til þriggja mánaða birgðir hið minnsta af allra nauðsynlegustu lyfjunum. Neyðarlyfjabirgðir eru hluti af almannavarnakerfi landsins. Því snýst vinnan við gerð lyfjaáætlunar í og með um að ákvarða hvar slíkar birgðir verða staðsettar. Í dag eru lyfjabirgðir geymdar á einum stað en hins vegar er það skýrt skilgreint hvernig brugðist skal við ef neyð skapast, en dreifikerfi neyðarlyfja tengist 15 aðilum innan sóttvarnasvæðanna um allt land.- shá
Mest lesið Sérveitin í aðgerð á Selfossi Innlent Sláandi niðurstöður um afstöðu Dana til sambandsins við Bandaríkin Erlent Öðru embætti falið að rannsaka andlátið Innlent Fjölskyldu konunnar grunaði ekkert Innlent Rétt var að svipta Guðmund Karl lækningaleyfinu Innlent „Svona rosaleg vanlíðan getur ekki staðið endalaust“ Innlent Fara fram á gæsluvarðhald yfir starfsmönnum Hraunbúða Innlent Fórnarlömb vilja láta loka á Epstein-skjölin Erlent Segir vonbrigðin með prinsessuna rista djúpt Erlent Þrettán ára synti fjóra kílómetra til að bjarga fjölskyldu sinni Erlent Fleiri fréttir Fjölskyldu konunnar grunaði ekkert Sérveitin í aðgerð á Selfossi Borgarstjórn vill að börn fái frítt í Strætó Unglingaofbeldi eykst: „Slagsmál geta hreinlega endað með manndrápi“ Grafið í háspennustreng í Urriðaholti Skæð fuglaflensa í villtum fuglum á höfuðborgarsvæðinu Fara fram á gæsluvarðhald yfir starfsmönnum Hraunbúða Andlát í Eyjum til rannsóknar og listería á Vitatorgi Ekki staðfest að veikindi fimm tengist listeríu í salati Árekstur í Urriðaholti Miðflokkurinn býður fram í Vestmannaeyjum Kona kastaði flösku í höfuð manns Öðru embætti falið að rannsaka andlátið Rétt var að svipta Guðmund Karl lækningaleyfinu Átta frambjóðendur VG berjast um þrjú sæti á lista í Reykjavík Litlar breytingar á fylgi flokkanna Nakinn á rölti og hrækt í hár ökumanns „Svona rosaleg vanlíðan getur ekki staðið endalaust“ Þriðjungi finnst erfitt að fylgjast með fréttum Segir loðnuna allsstaðar kveikja vertíðarstemningu „Þá kemur bara allt í einu högg“ Tveir handteknir í tengslum við andlát í Vestmannaeyjum Gagnrýnir stjórnvöld um sinnuleysi vegna fæðuöryggis þjóðarinnar Brottvísanir verði beittasta vopnið Fjölskyldunni vísað til Rússlands en örlög föðurins óljós Fækka sýslumönnum í einn Óttaðist um líf sitt þegar árásin stóð sem hæst Loka framleiðslueldhúsi vegna listeríu Eygló landpóstur greiðir 45 þúsund krónum meira: „Er ekki venjulegt fólk á landsbyggðinni?“ Einum Bifrastarkennaranna sagt upp fyrir ótengdar sakir Sjá meira