Tvær í tjaldi og ein á víðavangi 10. ágúst 2012 02:30 Ein kona kærði nauðgun sem átti sér stað utandyra í Herjólfsdal, en engin vitni eru að árásinni sjálfri.
Lögreglan leitar enn tveggja manna í tengslum við nauðganir sem hafa verið kærðar eftir nýliðna Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum. Lögreglan á Selfossi og í Vestmannaeyjum rannsakar málin en alls kærðu þrjár konur nauðgun á hátíðinni. Málin eru óskyld, tvær nauðganir áttu sér stað í tjaldi og ein á víðavangi. Nú er verið að skoða upptökur úr öryggismyndavélum og yfirheyra vitni til þess að fá nánari lýsingar á mönnunum tveimur sem leitað er að. Þeir eru taldir um eða yfir tvítugt. Að sögn Elísar Kjartanssonar, lögreglufulltrúa á Selfossi, er rannsókn enn í fullum gangi. „Við erum að yfirheyra vitni enn frekar til að fá gleggri mynd af þessu öllu saman og af þeim,“ segir hann. „Við erum ekki búnir að gefast upp.“ Elís segir lýsingar á mönnunum heldur óljósar og byggir lögreglan því rannsókn sína að miklu leyti á upptökum eftirlitsmyndavéla til að fylgjast með ferðum fórnarlambanna og sjá hverja konurnar hittu. „Við bindum vonir við að myndavélarnar komi að gagni,“ segir Elís. „Ef þær væru ekki til staðar væri þetta mun erfiðara.“ Búið er að taka skýrslu af einum manni sem neitar alfarið sök, og að sögn lögreglu ber sögum kæranda og hins grunaða ekki saman. Verið er að yfirheyra frekari vitni í því máli og verður það síðan sent til ákæruvaldsins þegar niðurstöður úr DNA-rannsóknum eru komnar. - sv
Mest lesið Sérveitin kölluð út að vopnaðri líkamsárás á Selfossi Innlent Fjölskyldu konunnar grunaði ekkert Innlent Sláandi niðurstöður um afstöðu Dana til sambandsins við Bandaríkin Erlent Öðru embætti falið að rannsaka andlátið Innlent Kröfunni hafnað og starfsmönnunum sleppt Innlent Rétt var að svipta Guðmund Karl lækningaleyfinu Innlent „Svona rosaleg vanlíðan getur ekki staðið endalaust“ Innlent Fara fram á gæsluvarðhald yfir starfsmönnum Hraunbúða Innlent Fórnarlömb vilja láta loka á Epstein-skjölin Erlent Segir vonbrigðin með prinsessuna rista djúpt Erlent Fleiri fréttir „Af öllum vondu málum ríkisstjórnarinnar finnst mér þetta það versta“ Starfsmenn á bráðamóttöku með berkla en ekki taldir smitandi Snjóleysi í Reykjavík í janúar ekki einsdæmi en afar fátítt Kröfunni hafnað og starfsmönnunum sleppt Fjölskyldu konunnar grunaði ekkert Sérveitin kölluð út að vopnaðri líkamsárás á Selfossi Borgarstjórn vill að börn fái frítt í Strætó Unglingaofbeldi eykst: „Slagsmál geta hreinlega endað með manndrápi“ Grafið í háspennustreng í Urriðaholti Skæð fuglaflensa í villtum fuglum á höfuðborgarsvæðinu Fara fram á gæsluvarðhald yfir starfsmönnum Hraunbúða Andlát í Eyjum til rannsóknar og listería á Vitatorgi Ekki staðfest að veikindi fimm tengist listeríu í salati Árekstur í Urriðaholti Miðflokkurinn býður fram í Vestmannaeyjum Kona kastaði flösku í höfuð manns Öðru embætti falið að rannsaka andlátið Rétt var að svipta Guðmund Karl lækningaleyfinu Átta frambjóðendur VG berjast um þrjú sæti á lista í Reykjavík Litlar breytingar á fylgi flokkanna Nakinn á rölti og hrækt í hár ökumanns „Svona rosaleg vanlíðan getur ekki staðið endalaust“ Þriðjungi finnst erfitt að fylgjast með fréttum Segir loðnuna allsstaðar kveikja vertíðarstemningu „Þá kemur bara allt í einu högg“ Tveir handteknir í tengslum við andlát í Vestmannaeyjum Gagnrýnir stjórnvöld um sinnuleysi vegna fæðuöryggis þjóðarinnar Brottvísanir verði beittasta vopnið Fjölskyldunni vísað til Rússlands en örlög föðurins óljós Fækka sýslumönnum í einn Sjá meira